Fréttir
Byggðastofnun hlýtur jafnlaunavottun VR
Almennt
29 nóvember, 2013
Fimmtudaginn 28. nóvember var Byggðastofnun afhent staðfesting á því að hún hafi hlotið jafnlaunavottun VR.
Lesa meira
Stöðugreining 2013
Almennt
21 nóvember, 2013
Byggðastofnun hefur tekið saman Stöðugreiningu 2013 sem ætlað er að fylgja stefnumótandi byggðaáætlun 2014-2017. Stöðugreiningin er uppfærsla á Stöðugreiningu 2012 sem Byggðastofnun vann að ósk stýrinets stjórnarráðsins og setti fram í desember 2012 fyrir vinnu landshlutasamtaka sveitarfélaga við sóknaráætlanir.
Lesa meira
Viðbótaraflamark á Bakkafirði
Almennt
13 nóvember, 2013
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira
Byggðastofnun lækkar vexti á verðtryggðum lánum
Almennt
6 nóvember, 2013
Á fundi stjórnar Byggðastofnunar þann 4. nóvember síðastliðinn var tekin ákvörðun um að lækka vexti á verðtryggðum lánum hjá stofnuninni úr 6,4% í 5,9% eða um 0,5%. Lækkunin á við um ný og eldri verðtryggð lán hjá stofnuninni.
Lesa meira
Byggðastofnun veitir óverðtryggð lán
Almennt
16 október, 2013
Á fundi stjórnar Byggðastofnunar þann 9. október síðastliðinn var tekin ákvörðun um að bjóða viðskiptavinum stofnunarinnar upp á óverðtryggð lán. Þetta er í fyrsta skipti sem stofnunin bíður uppá óverðtryggð lán en vextir á lánunum verða með 3,5% álagi ofan á REIBOR.
Lesa meira
16 umsóknir bárust um viðbótaraflamark
Almennt
14 október, 2013
Alls bárust 16 umsóknir um 1.800 þorskígildistonna aflaheimildir sem Alþingi fól Byggðastofnun að úthluta til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira
Hagvöxtur landshluta 2007-2011
Almennt
10 október, 2013
Skýrsla um Hagvöxt landshluta er nú gefin út í sjötta sinn og að þessu sinni er fjallað um árin 2007-2011. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Sigurði Árnasyni og Snorra Birni Sigurðssyni á Þróunarsviði Byggðastofnunar.
Lesa meira
Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina
Almennt
30 september, 2013
Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík veita viðurkenningu til framúrskarandi menningarverkefna í tíunda sinn.
Lesa meira
Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark
Almennt
19 september, 2013
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:
standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.
Lesa meira
Flutningsjöfnunarstyrkir – 170 milljónir króna
Almennt
17 september, 2013
Greiddar hafa verið tæplega 170 milljónir króna í svo kallaðan flutningsjöfnunarstyrk á þessu ári. Markmiðið er að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna kostnað framleiðenda við flutning á vörum sínum. Þetta á við þá sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa af þeim sökum við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur sem eru nær markaðinum.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember