Fréttir
Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark
Almennt
19 september, 2013
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:
standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.
Lesa meira
Flutningsjöfnunarstyrkir – 170 milljónir króna
Almennt
17 september, 2013
Greiddar hafa verið tæplega 170 milljónir króna í svo kallaðan flutningsjöfnunarstyrk á þessu ári. Markmiðið er að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna kostnað framleiðenda við flutning á vörum sínum. Þetta á við þá sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa af þeim sökum við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur sem eru nær markaðinum.
Lesa meira
Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum
Almennt
13 september, 2013
Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu eins og undanfarin ár. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og 351m3. Stærð lóðar er 808m2. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2012 og samkvæmt álagningarreglum ársins 2013 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Til að forðast skekkjur var útreikningur fasteignagjaldanna sendur á viðkomandi sveitarfélag og óskað eftir að athugasemdir yrðu gerðar ef um skekkjur er að ræða. Tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem bárust.
Lesa meira
Þróun íbúafjöldans 1992-2013 eftir sveitarfélögum
Almennt
13 september, 2013
Byggðastofnun hefur útbúið kort sem sýnir þróun íbúafjölda eftir sveitarfélögum á árunum 1992-2013. Hlutfallslega mesta fjölgunin á landsbyggðinni var í Svf. Vogar þar sem fjölgaði um 66% en mesta íbúafjölgunin var í Reykjanesbæ þar sem fjölgaði um 4.048 íbúa og í Svf. Árborg þar sem fjölgaði um 2.649 íbúa.
Lesa meira
Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2013
Almennt
26 ágúst, 2013
Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2013, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 26. ágúst 2013. Hagnaður tímabilsins nam 184,2 milljónum króna, samanborið við 206,4 milljón króna tap á sama tímabili 2012. Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013 staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið afskrifaðar.
Lesa meira
Úthlutun byggðakvóta til sjávarbyggða
Almennt
8 ágúst, 2013
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira
Útgreiðsla flutningsjöfnunarstyrkja hafin
Almennt
10 júlí, 2013
Alls bárust 66 umsóknir um flutningsjöfnunarstyrki vegna flutningskostnaðar fyrir árið 2012, en sótt er um eitt almanaksár í senn. Búið er að afgreiða 44 umsóknir og hafa 138 m.kr. verið greiddar út. Aðrar umsóknir eru í vinnslu en stefnt er að því að ljúka afgreiðslu á þeim nú í júlí.
Lesa meira
NORA styrkir níu samstarfsverkefni og öll með íslenskri þátttöku
Almennt
1 júlí, 2013
Á ársfundi NORA þann 4. júní voru samþykktir styrkir að fjárhæð tæpar 2,6 milljónir danskra króna (rúmar 57 mkr.) til níu samstarfsverkefna á NORA-svæðinu. Umsóknum um styrki hefur farið fjölgandi ár hvert og að þessu sinni bárust um 40 umsóknir. Íslendingar eru afar virkir þátttakendur í samstarfinu og eru með í næstum öllum verkefnum sem fá styrki.
Lesa meira
Íslenskir verkefnisstjórar í þremur nýjum forverkefnum á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar
Almennt
28 júní, 2013
Á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) 18. júní sl. var ákveðið að styrkja 19 ný forverkefni og taka íslenskir aðilar þátt í átta forverkefnum og leiða í þremur þeirra sem telja verður mjög góður árangur. Alls bárust 43 umsóknir um forverkefnisstyrki. Tilgangur forverkefna er að stuðla að gerð sterka aðalverkefna og er næsti umsóknarfrestur um aðalverkefni á næsta ári þegar ný áætlun tekur gildi.
Lesa meira
Nýr starfsmaður Byggðastofnunar
Almennt
19 júní, 2013
Byggðastofnun hefur ráðið Einar Örn Hreinsson til starfa sem sérfræðing á þróunarsviði stofnunarinnar.
Einar Örn er fæddur 17. júní 1973. Hann er með B.Sc. gráðu í eðlisfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í landafræði frá University of Canterbury, Christchurch, á Nýja Sjálandi. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá National Institute of Water and Atmospheric Research Ltd. (NIWA) á Nýja Sjálandi og þar áður hjá Orkustofnun og Einkaleyfastofu.
Einar Örn mun koma til starfa í byrjun ágúst.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember