Fréttir
Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark
Auglýsing – boð um samstarf
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:
- standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
- eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
- eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.
Í því skyni er stefnt að uppbyggingu í sjávarútvegi sem:
- skapar eða viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum,
- stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og dregur sem mest úr óvissu um framtíð sjávarbyggðanna.
Stjórn Byggðastofnunar hefur á grundvelli greiningar á stöðu einstakra byggðarlaga ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda til að stuðla að meginmarkmiðum verkefnisins í eftirtöldum sjávarbyggðum sem falla að ofangreindum viðmiðum;
Breiðdalsvík í Breiðdalshreppi, Drangsnes í Kaldrananeshreppi, Flateyri í Ísafjarðarbæ, Raufarhöfn í Norðurþingi, Suðureyri í Ísafjarðarbæ og Tálknafjörður í Tálknafjarðarhreppi.
Endanlegt val á 4-6 byggðum og samstarfsaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:
- Trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi.
- Fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur.
- Sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
- Öflugri starfsemi til lengra tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
- Jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið.
- Traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda.
Umsóknareyðublað, reglugerð um úthlutun og nýtingu veiðiheimilda ásamt nánari upplýsingum er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar, á netfangið byggdastofnun@byggdastofnun.is fyrir kl. 12:00 mánudaginn 7. október næst komandi. Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri og Sigurður Árnason starfsmaður þróunarsviðs.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember