Fréttir
Eyrarrósin 2016 auglýsir eftir umsóknum
Almennt
16 desember, 2015
Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn snemma árs 2016, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Lesa meira
Fundur með borgarstjóra
Almennt
15 desember, 2015
Stjórn og starfsfólk Byggðastofnunar og borgarstjóri og starfsmenn Reykjavíkurborgar héldu fund mánudaginn 14. desember 2015 í ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum var rætt um gerði nýrrar byggðaáætlunar fyrir árin 2017-2023 og aðkomu Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að því verkefni. Lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir voru samþykkt á Alþingi þann 30. júní síðast liðinn. Með lögunum er verklag sóknaráætlana fest í sessi og tengt beint við byggðaáætlun. Hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga er varða svæðisbundna áætlanagerð er skilgreint og stýrihópur stjórnarráðsins um byggðamál er lögfestur, en hann á að efla samráð og samhæfingu milli ráðuneyta og tryggja samráð við sveitarstjórnarstigið.
Lesa meira
Nordregio auglýsir stöðu yfirmanns rannsókna/aðstoðarforstjóra
Almennt
11 desember, 2015
Nordregio auglýsir stöðu yfirmanns rannsókna/aðstoðarfortjóra lausa til umsóknar.
Lesa meira
Skýrsla um styrkjaúthlutun úr sjóðum atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis
Almennt
3 desember, 2015
Út er komin lokaskýrsla Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um úttekt á starfsemi sjóða og stofnana sem heyra undir ráðuneytið í að skoða hlut kynja við úthlutun fjármagns og verklag og aðferðir við úthlutun fjármagns svo það nýtist aðilum sem jafnast óháð kyni. Verkefnið er hluti af vinnu við kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð (KHF).
Lesa meira
Hagvöxtur landshluta 2009-2013
Almennt
2 desember, 2015
Komin er út skýrslan Hagvöxtur landshluta 2009-2013 og er þetta í sjöunda skipti sem slík úttekt er unnin af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Þróunarsvið Byggðastofnunar. Að þessu sinni eru tekin fyrir árin eftir bankahrunið 2008 og mælistiku slegið á hagvaxtarþróun eftir svæðinum á því tímabili.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf í Grímsey
Almennt
27 nóvember, 2015
Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis XIII í lögum nr.116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og reglugerðar nr.1064/2015, auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda í Grímsey í Akureyrarkaupstað allt að 400 þorskígildistonnum á fiskveiðiárunum 2015/2016, 2016/2017 og 2018/2019.
Lesa meira
Staða kvenna í landbúnaði og tengdum greinum
Almennt
23 nóvember, 2015
Í skýrslunni Staða kvenna í landbúnaði og tengdum greinum sem Byggðastofnun vann fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti kemur m.a. fram að meiri nýliðun sé meðal karla en kvenna í landbúnaðartengdri starfsemi. Síðustu 45 ár var fjöldi stofnaðra landbúnaðarfyrirtækja 2.031, en konur stofnuðu aðeins 232 þeirra eða 11%. Margar fleiri áhugaverðar upplýsingar koma fram í skýrslunni.
Lesa meira
Vel mætt á íbúafund á Breiðdalsvík
Almennt
22 nóvember, 2015
Hátt í 50 manns sóttu íbúafund verkefnisins „Breiðdælingar móta framtíðina“ á Breiðdalsvík mánudaginn 16. nóvember sl. Þar var rætt um framtíðarsýn og markmið og fram komu ýmsar hugmyndir að verkefnum. Mikil jákvæðni og samheldni einkenndi fundinn.
Lesa meira
Skaftárhreppur til framtíðar – fjörugar umræður á íbúafundi
Almennt
19 nóvember, 2015
Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri vegna verkefnisins Skaftárhreppur til framtíðar var haldinn miðvikudagskvöldið 4. nóvember sl. Fundinn sóttu um fimmtíu manns og ræddu framtíð samfélagsins af miklum áhuga fram eftir kvöldi.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf á Bakkafirði
Almennt
18 nóvember, 2015
Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis XIII í lögum nr.116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og reglugerðar nr.606/2015, auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Bakkafirði í Langanesbyggð, allt að 125 þorskígildistonnum á fiskveiðiárunum 2016/2017 og 2017/2018 en allt að 150 þorskígildistonnum á yfirstandandi fiskveiðiári (2015/2016).
Um endurtekna auglýsingu er að ræða.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember