Fréttir
Byggðastofnun þátttakandi í menningarátaki á landsbyggðinni
Almennt
30 apríl, 2004
Með undirritun samninga í dag milli Byggðastofnunar, Listahátíðar og Flugfélags Íslands er stigið stórt skref til stuðnings
menningarlífi á landsbyggðinni. Samningarnir, sem eru til 3ja ára, taka að hluta gildi á komandi Listahátíð þegar írski
nóbelshöfundurinn Seamus Heaney og franska skemmtisveitin Klezmer Nova fara norður og austur á land. Verðgildi þessara samninga er um 11,5 milljóna
Lesa meira
Samið um verkefnið Virkjum alla!
Almennt
4 mars, 2004
Í gær var skrifað undir samning milli Byggðastofnunar annars vegar og Aðaldælahrepps, Húsavíkurbæjar og Þingeyjarsveitar hins vegar, um
framkvæmd á rafrænu samfélagi í sveitarfélögunum. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaganna sem valið var í
samkeppni Byggðastofnunar og Iðnaðarráðuneytisins á síðasta ári en uppbygging á rafrænum samfélögum er eitt af 22
aðgerðaverkefnum í byggðaáætlun. Heiti verkefnisins sem hér um ræðir er “Skjálfandi í faðmi þekkingar –
Rafrænt samfélag við Skjálfanda” og eru einkunnarorð þess, “Virkjum alla!”. Vísa þau til megin markmiðs verkefnisins, sem er
að virkja alla íbúa byggðarlagsins til að nýta sér möguleika tölvu- og upplýsingatækninnar á sem flestum sviðum hins daglega
lífs. Til að hrinda verkefninu í framkvæmd leggur Byggðastofnun til þess að hámarki 54 milljónir á þremur árum gegn
jafnháu framlagi heimaaðila.
Lesa meira
Ber er hver að baki átak í nýsköpun á landsbyggðinni.
Almennt
18 febrúar, 2004
Ásthildur Sturludóttir ritar kostulega grein á vefritið Tíkina (tikin.is) þann 6.
febrúar síðast liðinn undir fyrirsöginni “Ber er hver að baki nema sér bróður eigi” Í grein þessari er fjallað um
hlutafjárkaup Byggðastofnunar í nýsköpunarfyrirtækjum nú nýverið. Greinin er svo uppfull af rangfærslum og misskilningi að ekki
verður hjá því komist að gera við hana athugasemdir.
Lesa meira
Styrkur til rannsókna á þátttöku kvenna í atvinnurekstri
Almennt
3 febrúar, 2004
Jafnréttisáætlun Evrópusambandsins styrkir verkefnið ,,Women towards leadership in business and agriculture “ sem er samanburðarrannsókn fimm
landa, þ.e. Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Grikklands og Lettlands. Þátttakendur fyrir hönd Íslands eru Byggðastofnun og
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og nemur heildarstyrkurinn um 437 þúsund evrum, eða um 37 milljónum íslenskra króna.
Lesa meira
Samið um verkefnið Sunnan 3
Almennt
3 febrúar, 2004
Byggðastofnun hefur undirritað samstarfssamning um verkefnið Sunnan 3 sem er annað tveggja verkefna sem valin voru í samkeppni um framkvæmd rafræns
samfélags. Að Sunnan 3 standa sveitarfélögin Ölfus, Hveragerðisbær og Árborg og fá þau samanlagt 54 milljónir króna á
næstu þremur árum til að hrinda í framkvæmd þeim áætlunum um uppbygigngu rafræns samfélags sem þau kynntu í samkeppni
sem Byggðastofnun efndi til á síðasta ári.
Lesa meira
Um 20% styrkja úr opinberum sjóðum til atvinnusköpunar kvenna
Almennt
30 janúar, 2004
Byggðastofnun hefur lokið við skýrslu um skiptingu fjár úr opinberum sjóðum milli karla og kvenna. Í niðurstöðum kemur fram að
af úthlutuðum fjármunum þeirra sjóða sem skýrslan nær til runnu um 20% til atvinnusköpunar kvenna á árabilinu 1997-2002.
Lesa meira
Hlutverk Byggðastofnunar í átaki til nýsköpunar á landsbyggðinni
Almennt
15 janúar, 2004
Í upphafi síðasta árs ákvað ríkisstjórnin sérstaka 700 milljóna króna fjárveitingu til
atvinnuþróunarverkefna á landsbyggðinni. Verkefni þessu var skipt í 3 flokka og var Byggðastofnun falið að annast framkvæmd tveggja
þeirra. Í fyrsta lagi var stofnunni heimilað að fjárfesta í álitlegum sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum í skýrum vexti. Til
þessa hluta voru veittar 350 milljónir króna. Í öðru lagi var svo Byggðastofnun falið að hafa frumkvæði um rekstur vel mótaðra
stuðningsverkefna sem væru til þess fallin að efla nýsköpun og atvinnuþróun á landsbyggðinni. Til þessa hluta var veitt 150
milljónum króna.
Lesa meira
Byggðastofnun kaupir eignarhluti í fyrirtækjum á landsbyggðinni fyrir 350 milljónir króna
Almennt
12 janúar, 2004
Byggðastofnun hefur ákveðið kaup á eignarhlutum í 23 sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum á landsbyggðinni fyrir samtals um 350
milljónir króna. Um er að ræða lið í átaki sem ríkisstjórnin samþykkti að hrinda í framkvæmd í febrúar
á síðasta ári en þá var ákveðið að verja 700 milljónum króna til atvinnuþróunarverkefna á landsbyggðinni
og var Byggðastofnun fengið það verkefni að úthluta 500 milljónum af þessum fjármunum. Í apríl sl. var auglýst eftir
umsóknum um 350 milljónir í hlutafjárkaupum og var atvinnulífið flokkað í þrjá flokka, þ.a. sjávarútveg og tengdar
greinar, iðnað, upplýsingatækni, líftækni, landbúnað og tengdar greinar og loks var þriðji flokkurinn ferðaþjónusta og tengdar
greinar.
Lesa meira
Þorvaldur T. Jónsson tekur sæti í stjórn Byggðastofnunar
Almennt
6 janúar, 2004
Þorvaldur Tómas Jónsson, bóndi í Hjarðarholti í Borgarfirði og rekstrarráðgjafi, hefur verið skipaður í stjórn
Byggðastofnunar frá 1. janúar sl. í stað Elísabetar Benediktsdóttur. Elísabet tók nýverið við starfi forstöðumanns
Íslandsbanka á Reyðarfirði.
Lesa meira
Byggðastofnun stýrir embættismannanefnd Norðurlanda um byggðaþróun á árinu 2004
Almennt
19 desember, 2003
Ísland mun taka við formennsku í Norðurlandaráði á komandi ári og meðal þess starfs á norrænum vettvangi sem Ísland mun
leiða er formennska í embættismannanefnd Norðurlanda um byggðaþróun. Byggðastofnun hefur þetta formennskuhlutverk með höndum fyrir
Íslands hönd.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember