Fréttir
Samningar um sóknaráætlanir landshluta auka ábyrgð og völd í héraði
Almennt
13 nóvember, 2019
Nýir sóknaráætlanasamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga voru undirritaðir 12. nóvember sl. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu samningana átta við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna.
Lesa meira
Afgerandi meirihluti íbúa er ánægður með búsetu sína
Almennt
12 nóvember, 2019
Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi vorið 2019. Könnunin meðal íbúa bæja og þorpa er hluti rannsóknarinnar Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnin er á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við innlenda og erlenda háskóla. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni
Lesa meira
Betri Bakkafjörður – íbúafundur afgreiðir verkefnisáætlun
Almennt
6 nóvember, 2019
Þann 5. nóvember boðaði verkefnisstjórn Betri Bakkafjarðar til íbúafundar til að leggja fyrir og ræða drög að verkefnisáætlun sem verkefnisstjórn og verkefnisstjóri höfðu unnið upp úr umræðum og áherslumálum frá íbúaþingi sl. vor og tillögum ráðherraskipaðrar nefndar um málefni Bakkafjarðar sem samþykktar voru á fundi ríkisstjórnar 23. nóvember á síðasta ári.
Lesa meira
Nýr forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar
Almennt
5 nóvember, 2019
Sigríður Elín Þórðardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar.
Lesa meira
Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva
Almennt
30 október, 2019
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna fjarvinnslustöðva, sbr. aðgerð B.8 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið aðgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Ráðuneyti og stofnanir sem ráðast í slík átaksverkefni utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um stuðning en úthlutað verður allt að 24 milljónum króna. Heimilt er að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert verkefni. Þá er heimilt að veita styrki til sama verkefnis til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir hvers árs.
Lesa meira
Nýjar sóknaráætlanir landshluta í undirbúningi
Almennt
25 október, 2019
Landshlutasamtök sveitarfélaga vinna nú hörðum höndum að gerð nýrra sóknaráætlana sem taka eiga gildi um næstu áramót. Þegar hafa drög að áætlunum þriggja svæða verið sett inn í opna samráðsgátt Stjórnarráðsins til kynningar og fleiri munu skila sér þangað inn á næstu vikum. Ein áætlun hefur þegar verið samþykkt.
Lesa meira
Greinargerð um flutningsjöfnunarstyrki 2019
Almennt
25 október, 2019
Byggðastofnun hefur haft umsjón með styrkveitingum vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar frá árinu 2012. Markmið laga nr. 160/2011, um svæðisbundna flutningsjöfnun, er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa þ.a.l. við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.
Lesa meira
AVS - rannsóknarsjóður í sjávarútvegi - auglýsir eftir umsóknum
Almennt
24 október, 2019
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni 2020 með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20, 2. desember 2019.
Lesa meira
Skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis
Almennt
17 október, 2019
Byggðstofnun vinnur nú að verkefni af byggðaáætlun sem nefnist „skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis“ (A-18). Markmið þess er að „íbúar landsis, óháð búsetu, hafi jafnt aðgengi að opinberri grunnþjónustu með bættum aðstæðum og tæknilausnum.“ Skilgreina á rétt fólks til opinberrar grunnþjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu, löggæslu, menntunar, samgangna og fjarskipta. Þegar skilgreining liggur fyrir verða unnar tillögur um tæknilega framkvæmd og jöfnun kostnaðar við að sækja einstaka þætti þjónustu á vegum ríkisins og gerðar tillögur um það í langtímaáætlun eigi síðar en árið 2021. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ber ábyrgð á verkefninu, en Byggðastofnun sér um framkvæmdina í samstarfi við ýmsa aðila, s.s. ráðuneyti og samtök sveitarfélaga.
Lesa meira
Styrkir til meistaranema 2020
Almennt
30 september, 2019
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.000.000 kr. og stefnt að því að veita fjóra styrki.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember