Fara í efni  

Fréttir

Glaðbeittir fundargestir

Fulltrúar Brothættra byggða funda með sveitarstjórn Strandabyggðar

Þann 16. janúar sl. funduðu sveitarstjórn og sveitarstjóri Strandabyggðar með fulltrúum Byggðastofnunar í verkefninu Brothættar byggðir. Fundurinn var fræðslufundur um verkefnið, haldinn í kjölfar þess að stjórn stofnunarinnar samþykkti inngöngu Strandabyggðar í verkefnið. Fulltrúar Byggðastofnunar kynntu verkefnið og verklag þess og góðar umræður sköpuðumst um verkefnið í Strandabyggð.
Lesa meira
Frá Akureyri

Fjarvinnslustöðvar fá 24 milljónir króna í verkefnastyrki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki vegna fjarvinnslustöðva sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 (aðgerð B.8 - fjarvinnslustöðvar). Að þessu sinni var 24 milljónum króna úthlutað til þriggja verkefna fyrir árin 2019-2020. Þá hafa einnig verið gefin fyrirheit um styrki að heildarupphæð 55 milljónum króna til ársins 2023. Auglýst voru framlög fyrir árin 2019-2020 en heimilt er að styrkja sama verkefni til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs.
Lesa meira
Styrkir til meistaranema 2020

Styrkir til meistaranema 2020

Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum þann 17. desember sl. að styrkja þrjá meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðamála. Heildarupphæð styrkjanna er ein milljón króna. Veittur er einn styrkur að upphæð 400.000 krónur, en tvö verkefni hljóta styrk að fjárhæð 300.000 krónur. Viðfangsefnin snúast um hvernig byggja megi upp miðbæjarkjarna í þéttbýli, stöðu þorpa gagnvart stærri byggðakjörnum innan sama sveitarfélags og það verkefni sem hæstan styrk hlýtur snýst um að kanna hvernig byggingar sem hýst hafa atvinnustarfsemi en gera ekki lengur geta nýst og eru nýttar í dag.
Lesa meira
Nýr forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar tekinn til starfa

Nýr forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar tekinn til starfa

Nú um áramótin tók Sigríður Elín Þórðardóttir við starfi sem forstöðumaður þróunarsviðs. Sigríður Elín er með mastersgráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar um árabil. Í starfi sínu á Byggðastofnun hefur hún unnið að fjölbreyttum verkefnum og stýrt stórum samstarfsverkefnum á verkefnasviði stofnunarinnar, jafnt innlendum sem erlendum.
Lesa meira
Af vef Vegagerðarinnar

Skortur á öryggi í raforkuflutningum og fjarskiptum ógnar búsetuskilyrðum

Atburðir síðustu daga, þegar stórir hlutar landsins voru án rafmagns og fjarskipta, sýna að miklir veikleikar eru í mikilvægum öryggisinnviðum landsins og að stór hluti íbúa landsbyggðanna býr við mikið óöryggi hvað varðar flutning raforku og fjarskipti. Það er með öllu óásættanlegt og ógnar búsetuskilyrðum víða um land. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ályktun fundar stjórnar Byggðastofnunar þann 17. desember.
Lesa meira
Fjögur samstarfsverkefni með íslenskum þátttakendum fengu styrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPA)

Fjögur samstarfsverkefni með íslenskum þátttakendum fengu styrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPA)

Á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunarinnar sem haldinn var í Kaupmannahöfn í byrjun desember var samþykkt að styrkja átta ný samstarfsverkefni. Íslenskir aðilar taka þátt í fjórum nýjum verkefnum en auk þess eru íslenskir samstarfsaðilar í þremur verkefnum til viðbótar. Heildarstyrkur til verkefna sem íslenskir aðilar taka þátt nemur tæpum 202 milljónum króna. Íslenskir aðila fá rúmar 38 milljónir króna í styrk en mótframlag íslenskra þátttakenda er rúmar 27 milljónir króna.
Lesa meira
Byggðastofnun lækkar vexti

Byggðastofnun lækkar vexti

Eftir vaxtalækkanir Seðlabanka Íslands síðustu misseri ákvað stjórn Byggðstofnunar að lækka vaxtaprósentu verðtryggðra lána stofnunarinnar.
Lesa meira
Breytingar í ferðaþjónustu 2008-2018

Atvinnutekjur 2008-2018 eftir atvinnugreinum og landshlutum

Heildaratvinnutekjur á árinu 2018 námu 1.316 milljörðum kr. sem var aukning um tæplega 64 milljarða kr. frá árinu 2017 eða sem nemur 4,9%. Frá 2008 hafa atvinnutekjur á landinu öllu aukist um 256 milljarða kr. eða um 24%. Mest aukning á tímabilinu 2008-2018 var í greinum tengdum ferðaþjónustu. Það er í flutningum og geymslum um 49 milljarða kr. (84%), gistingu og veitingum um 38,5 milljarða kr. (151%) og í leigu og sérhæfðri þjónustu um 33 milljarða kr. (130%). Samdráttur varð í tveimur greinum, fjármála- og vátryggingastarfsemi þar sem atvinnutekjur á tímabilinu 2008-2018 lækkuðu um 26 milljarða kr. (-29%) og í fiskveiðum um 6,6 milljarða kr. (-13%).
Lesa meira
Listahátíðin List í ljósi handhafa Eyrarrósarinnar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2020

Eyrarrósin er viðurkenning veitt framúrskarandi menningarverkefnum sem þegar hafa fest sig í sessi utan höfuðborgarsvæðisins. Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 7. janúar 2020.
Lesa meira
Skýrsla um Hagvöxt landshluta 2012-2017

Skýrsla um Hagvöxt landshluta 2012-2017

Skýrslan Hagvöxtur landshluta 2012-2017 er komin út. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í samvinnu við þróunarsvið Byggðastofnunar.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389