Fréttir
Skýrsla um stöðu og möguleika lífrænnar framleiðslu á Íslandi
Almennt
24 ágúst, 2006
Út er komin skýrsla starfshóps um stöðu og möguleika lífrænnar framleiðslu á Íslandi.
Lífrænar aðferðir eru í mikilli sókn víða um heim í framleiðslu matvæla, snyrtivara, vefnaðarvara og hvers konar
náttúruafurða. Stjórnvöld flestra Evrópuríkja vinna markvisst að því að hagnýta slíkar aðferðir til
sóknar í byggða- og umhverfismálum. Þessi þróun hefur að mestu farið framhjá Íslendingum.
Lesa meira
Ársfundur Byggðastofnunar 2006
Almennt
14 júní, 2006
Síðastliðinn föstudag, þann 9. júní, var ársfundur Byggðastofnunar haldinn í Ólafsvík á Snæfellsnesi.
Á fundinum fóru fram hefðbundin ársfundarstörf. Fundarstjóri var Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ.
Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, formaður stjórnar Byggðastofnunar, Herdís Sæmundardóttir og forstjóri
Byggðastofnunar, Aðalsteinn Þorsteinsson, fluttu ræður sem aðgengilegar verða í heild hér á síðunni.
Ársfundargestum var kynnt vinna sem í gangi er varðandi vatnsútflutning í stórum stíl frá Snæfellsbæ og sömuleiðis vinna
sem í gangi er við að gera Snæfellsnes að vistvænu ferðamannasvæði.
Lesa meira
Ársfundur Byggðastofnunar 2006
Almennt
7 júní, 2006
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn föstudaginn 9. júní nk. í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík, kl. 10-13.
Lesa meira
Árangursríkt alþjóðlegt samstarf á sviði byggðamála NPP verkefnið
Almennt
4 maí, 2006
Út er komin matsskýrsla IMG á þátttöku Íslands í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme – NPP). Stjórn NPP á Íslandi óskaði eftir því við IMG ráðgjöf að fyrirtækið kannaði og legði mat á gildi Norðurslóðaáætlunar ESB fyrir Ísland, framkvæmd hennar hér á landi og árangur af þátttöku, í þeim tilgangi að gera verkefnið öflugra og betra, væri slíkt mögulegt.
Lesa meira
Stefnt að stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Almennt
28 mars, 2006
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggur á næstu dögum fram á Alþingi stjórnarfrumvarp
til laga um Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hennar frumkvæði og miðar við
að lögfest verði fyrir þinglok í vor.
Gert er ráð fyrir umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar á vegum iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytis með því að sameina starfsemi Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í
Nýsköpunarmiðstöð Íslands með höfuðstöðvar á Sauðárkróki. Áfram verður öflug
tæknirannsókna- og frumkvöðlastarfsemi í Keldnaholti í Reykjavík.
Lesa meira
Niðurstöður nefndar um velferðarþjónustu í dreifbýli
Almennt
2 mars, 2006
Þann 24. febrúar kynnti félagsmálaráðherra í ríkisstjórn niðurstöðu nefndar um velferðarþjónustu í
dreifbýli. Nefndin var skipuð af félagsmálaráðherra vorið 2004. Tilefni skipunarinnar var ályktun búnaðarþings árið 2002
þar sem skorað var á félagsmálaráðherra að „skipa nefnd sem hafi það að markmiði að kanna aðstöðumun
íbúa innan sveitarfélaga og beiti sér fyrir því að íbúar hvers sveitarfélags eigi sem líkastan aðgang að þeirri
þjónustu sem veitt er“. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar félagsmálaráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands.
Starfsmaður nefndarinnar var frá Byggðastofnun. Skýrslan nefnist Velferðarþjónusta í dreifbýli og má skoða hana hér til
hægri á síðunni.
Lesa meira
Ársreikningur Byggðastofnunar 2005
Almennt
27 febrúar, 2006
Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2005 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 24. febrúar sl. Tap ársins nam 272.193
þús. kr. miðað við 385.463 þús. kr. tap árið 2004.
Lesa meira
Styrkir til atvinnumála kvenna árið 2006
Almennt
16 febrúar, 2006
Vinnumálastofnun/Félagsmálaráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2006. Heildar fjárhæð til
úthlutunar er 25.000.000. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2006
Athugið að eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.
Lesa meira
Hugmyndasamkeppni um þjóðgarðafurð í ríki Vatnajökuls
Almennt
23 janúar, 2006
Efnt hefur verið til hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls. Að samkeppninni stendur NEST-verkefnið á Íslandi
en NEST stendur fyrir Northern Environment for Sustainable Tourism, eða þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á norðurslóðum.
Verkefnið á Íslandi nær til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps en auk sveitarfélaganna tveggja standa að því
Háskólasetrið á Hornafirði, Þróunarstofa Austurlands, Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands, Skaftafellsþjóðgarður
og fjölmargir ferðaþjónustuaðilar á svæðinu.
Markmið með NEST verkfeninu er að nýta til framþróunar þau tækifæri sem felast í búsetu í nágrenni
þjóðgarða og verndarsvæða. Þátttökuskilyrði í hugmyndasamkeppninni um þjóðgarðsafurð í ríki
Vatnajökuls er að afurðin tengist áðurnefndum tveimur sveitarfélögum, þ.e. hafi beina og augljósa tengingu við náttúru eða
mannlíf á svæðinu á hugmyndalegan hátt eða með notkun hráefnis.
Lesa meira
Tvö ný verkefni innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) með íslenskri þátttöku
Almennt
10 janúar, 2006
Vorið 2002 gerðust Íslendingar aðilar að Norðurslóðaáætlun ESB NPP (Northern Periphery Programme). Áætlunin nær til
norðlægra svæða í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Skotlandi, en einnig til Grænlands, Færeyja og Íslands. Meginmarkmið
áætlunarinnar er að stuðla að eflingu atvinnu- og efnahagslífs svæða og byggða með svipaðar aðstæður, með samstarfsverkefnum
yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana í þessum landshlutum. Reynt er að koma í veg fyrir að landamæri
þjóðríkja sé hindrun í samstarfi og framþróun byggða og atvinnulífs með það að markmiði að
tækifæri og styrkleikar svæðanna fái notið sín sem best. Verkefnin innan NPP skapa mikilvæg tengsl og þekkingu sem byggja á
alþjóðlegri samvinnu og framtaki.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember