Fréttir
Fjögur ný verkefni innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) með íslenskri þátttöku
Almennt
13 júní, 2005
Vorið 2002 gerðust Íslendingar aðilar að Norðurslóðaáætlun ESB NPP (Northern Periphery Programme). Áætlunin nær til
norðlægra svæða í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Skotlandi, en einnig til Grænlands, Færeyja og Íslands. Meginmarkmið
áætlunarinnar er að stuðla að eflingu atvinnu- og efnahagslífs svæða og byggða með svipaðar aðstæður, með samstarfsverkefnum
yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana í þessum landshlutum. Reynt er að koma í veg fyrir að landamæri
þjóðríkja sé hindrun í samstarfi og framþróun byggða og atvinnulífs með það að markmiði að
tækifæri og styrkleikar svæðanna fái notið sín sem best. Verkefnin innan NPP skapa mikilvæg tengsl og þekkingu sem byggja á
alþjóðlegri samvinnu og framtaki.
Lesa meira
NPP-verkefnið DESERVE (Delivering Services in Rural and Remote Areas: A Transnational Exchange of Ideas and Practices)
Almennt
8 júní, 2005
Byggðastofnun tekur þátt í NPP-verkefni um þjónustu í dreifbýli og afviknum stöðum fyrir hönd Íslands. Með verkefninu,
sem kallað er DESERVE, er leitast við að koma á fót líkani um þjónustu í dreifðum byggðum sem nota má í löndum NPP.
Lesa meira
Fjórtán ný NORA verkefni með íslenskri þátttöku
Almennt
8 júní, 2005
Norður Atlantsnefndin Nora hélt ársfund sinn 4. – 5. júní 2005 í Nuuk á Grænlandi. Á fundinum voru til afgreiðslu 40
umsóknir og var ákveðið að verja 39,4 milljónum til stuðnings 20 nýrra samstarfsverkefna á milli Færeyja, Grænlands, Íslands og
Noregs. Af þeim 20 umsóknum sem samþykkt voru er Ísland þátttakandi í 14, sem telja verður góðan árangur. Á fundinum var
gerð grein fyrir auknum áherslum NORA á eflingu samstarfs atvinnulífs á milli samstarfslandanna og útvíkkun þess með samstarfi á
verkefnagrunni við norður Skotland og austur Kanada. Með starfsemi NORA, er stefnt að því að efla atvinnutengt samstarf á milli þjóða við
Norður Atlantshaf með þróunarverkefnum og verkefnum er stuðla að þekkingaryfirfærslu t.d. innan ferðaþjónustu, auðlindum sjávar,
upplýsingatækni, samgöngum, atvinnulífs og búsetuþátta.
Lesa meira
Vorfundur atvinnuþróunarfélaganna og Byggðastofnunar
Almennt
2 júní, 2005
Dagana 19. og 20. maí var vorfundur atvinnuþróunarfélaganna og Byggðastofnunar haldinn í Reykjanesbæ. Á fundinn mættu starfsmenn
atvinnuþróunarfélaga af öllu landinu. Flutt voru 10 erindi, m.a. um eignarhald kvenna í atvinnurekstri, um vaxtarsamning fyrir Eyjafjörð, um
landshlutaáætlanir, skipulagsmál höfuðborgarinnar og byggðaþróun, rannsókn á samfélagsáhrifum framkvæmda á Austurlandi og um byggðaáætlun 2006-2009.
Lesa meira
Ársfundur Byggðastofnunar 2004
Almennt
1 júní, 2005
Ársfundur Byggðastofnunar 2005 verður haldinn föstudaginn 10. júní nk. að Bifröst í Borgarfirði. Fundurinn hefst kl. 10:00 og
áætluð fundarlok eru kl. 12:00.
Lesa meira
Evrópsk skýrsla um eignarhald kvenna í atvinnurekstri
Almennt
8 mars, 2005
Út er komin skýrsla um eignarhald og stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi, en hún er framlag Íslands til Evrópuverkefnisins “Konur og eignarhald í viðskiptum og landbúnaði”, sem unnið er innan rammaáætlunar Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna. Samskonar úttekt var gerð í fjórum öðrum löndum, Noregi, Svíþjóð, Grikklandi og Lettlandi. Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi 3. mars sl.
Lesa meira
Fundur um Byggðaáætlun 2006-2009
Almennt
1 mars, 2005
Byggðastofnun ásamt iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti boðuðu til fundar um byggðaáætlun 2006-2009 föstudaginn 18. febrúar
á Grand Hótel í Reykjavík. Fundinn sóttu fulltrúar atvinnuþróunarfélaga um land allt og frá samtökum sveitarfélaga.
Þar voru kynnt markmið næstu byggðaáætlunar og fundargestum gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Lesa meira
Ný norræn samstarfsáætlun í byggðamálum 2005 2008
Almennt
1 febrúar, 2005
Norrænu byggðamálaráðherrarnir hafa samþykkt nýja samstarfsáætlun fyrir 2005-2008. Markmiðið með norrænu samstarfi er að
efla norrænu löndin. Áætlunin tekur mið af að Norðurlönd standa frammi fyrir nýrri stöðu í heimsmálunum með aukinni
pólítískri og efnahagslegri samþættingu í Evrópu og að samstarf í byggðamálum verður sífellt
alþjóðlegra.
Lesa meira
Eyrarrósin afhent á Bessastöðum
Almennt
28 janúar, 2005
Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem veitt verður á Bessastöðum fimmtudaginn
20. janúar.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember