Fara í efni  

Fréttir

Greinargerð starfshóps um lánastarfsemi Byggðastofnunar

Þann 22. nóvember 2010 skipaði iðnaðarráðherra starfshóp til að fjalla um lánastarfsemi Byggðastofnunar. Megin tilefni þess að starfshópurinn var skipaður var að eigið fé Byggðastofnunar var komið undir lögbundið lágmark. Vegna breyttra aðstæðna á fjármálamörkuðum og þessarar stöðu Byggðastofnunar var það mat iðnaðarráðherra að rétt væri að kanna hvaða fyrirkomulag hentar lánastarfsemi stofnunarinnar til frambúðar.
Lesa meira

Úrræði fyrir fyrirtæki

Þann 15. desember 2010 undirrituðu efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands samkomulag um hraða úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Lesa meira

Breytingar á íbúafjölda 2001-2010

Hagstofa Íslands hefur birt tölur um mannfjöldann þann 1. desember 2010. Þróunarsvið Byggðastofnunar hefur tekið saman greinargerð um helstu breytingar á  íbúafjölda sveitarfélaga og landssvæða frá 1.desember 2009 en einnig fyrir tímabilið 1. desember 2001- 1. desember 2010. Þessi áratugur hefur verið mikill umrótatími með miklum sveiflum í atvinnulífi og búsetuþróun.
Lesa meira

Þorskafli og -vinnsla eftir sveitarfélögum

Eins og fram kemur í lýsingu á þorskaflaheimildum annars staðar hér á heimasíðunni hafa þorskveiðar og –vinnsla lengi verið mikilvægir þættir í atvinnulífi landsmanna, einkum sjávarbyggða. Breytingar á veiðum hafa mikil áhrif á staðbundið atvinnulíf, einkum ef vinnsla er stunduð þar sem afla er landað, minnkandi þorskafli veldur þar mestum búsifjum og vaxandi afli mestri tekjuaukningu.
Lesa meira

Þorskaflaheimildir 2010-2011 misjafnar eftir sveitarfélögum

Þorskveiðar og –vinnsla hafa lengi verið mikilvægir þættir í atvinnulífi landsmanna, einkum sjávarbyggða, úthlutun aflaheimilda er þeim mikilvæg og skerðing heimilda veldur þeim búsifjum. Samkvæmt tölum Fiskistofu er mikill munur á þorskaflaheimildum, þorskkvóta, eftir sveitarfélögum fiskveiðiárið 2010-2011 sé miðað við heimahöfn skipa.
Lesa meira

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2011

Þema náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt í 17. sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.
Lesa meira

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Eyrarrósin, viðurkenning sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni, verður afhent í byrjun árs 2011. Af því tilefni er hér með auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2011.  Þetta er í sjötta sinn sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa að þessari viðurkenningu.
Lesa meira

Styrkir til markaðssetningar á handverki og hönnunarvörum farnir að skila árangri

Styrkir sem Byggðastofnun veitti í mars sl. til markaðssetningar á handverki og hönnunarvörum eru nú þegar farnir að skila árangri. Markmið með styrkveitingunni var að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvörum. Styrkjunum var ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna.
Lesa meira

Fundur um stöðu mála á Borgarfirði eystra

Í gær, miðvikudaginn 6. október, funduðu  forstjóri Byggðastofnunar ásamt þremur öðrum starfsmönnum stofnunarinnar, með heimamönnum á Borgarfirði eystra um stöðu mála í byggðarlaginu. Tilefni fundarins er að Fiskverkun Kalla Sveins ehf. hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu og taka uppsagnirnar gildi um næstu áramót. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur fyrirtækið misst saltfiskmarkaði sína.
Lesa meira

Byggðastofnun 25 ára

Í dag eru þau tímamót að 25 ár eru liðin frá fyrsta starfsdegi Byggðastofnunar.  1. október 1985 tók stofnunin til starfa og tók hún þá við öllum eignum og skuldbindingum Byggðasjóðs jafnframt sem felld voru úr gildi kaflar úr lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins og tók Byggðastofnun yfir verkefni hennar á sviði byggðamála.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389