Fara í efni  

Fréttir

Stefnt að stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggur á næstu dögum fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hennar frumkvæði og miðar við að lögfest verði fyrir þinglok í vor. Gert er ráð fyrir umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis með því að sameina starfsemi Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins í Nýsköpunarmiðstöð Íslands með höfuðstöðvar á Sauðárkróki. Áfram verður öflug tæknirannsókna- og frumkvöðlastarfsemi í Keldnaholti í Reykjavík.
Lesa meira

Niðurstöður nefndar um velferðarþjónustu í dreifbýli

Þann 24. febrúar kynnti félagsmálaráðherra í ríkisstjórn niðurstöðu nefndar um velferðarþjónustu í dreifbýli. Nefndin var skipuð af félagsmálaráðherra vorið 2004. Tilefni skipunarinnar var ályktun búnaðarþings árið 2002 þar sem skorað var á félagsmálaráðherra að „skipa nefnd sem hafi það að markmiði að kanna aðstöðumun íbúa innan sveitarfélaga og beiti sér fyrir því að íbúar hvers sveitarfélags eigi sem líkastan aðgang að þeirri þjónustu sem veitt er“. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar félagsmálaráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands. Starfsmaður nefndarinnar var frá Byggðastofnun. Skýrslan nefnist Velferðarþjónusta í dreifbýli og má skoða hana hér til hægri á síðunni.
Lesa meira

Ársreikningur Byggðastofnunar 2005

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2005 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 24. febrúar sl.  Tap ársins nam 272.193 þús. kr. miðað við 385.463 þús. kr. tap árið 2004.
Lesa meira

Styrkir til atvinnumála kvenna árið 2006

Vinnumálastofnun/Félagsmálaráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2006. Heildar fjárhæð til úthlutunar er 25.000.000. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2006 Athugið að eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.
Lesa meira

Hugmyndasamkeppni um þjóðgarðafurð í ríki Vatnajökuls

Efnt hefur verið til hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls. Að samkeppninni stendur NEST-verkefnið á Íslandi en NEST stendur fyrir Northern Environment for Sustainable Tourism, eða þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á norðurslóðum. Verkefnið á Íslandi nær til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps en auk sveitarfélaganna tveggja standa að því Háskólasetrið á Hornafirði, Þróunarstofa Austurlands, Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands, Skaftafellsþjóðgarður og fjölmargir ferðaþjónustuaðilar á svæðinu. Markmið með  NEST verkfeninu er að nýta til framþróunar þau tækifæri sem felast í búsetu í nágrenni þjóðgarða og verndarsvæða. Þátttökuskilyrði í hugmyndasamkeppninni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls er að afurðin tengist áðurnefndum tveimur sveitarfélögum, þ.e. hafi beina og augljósa tengingu við náttúru eða mannlíf á svæðinu á hugmyndalegan hátt eða með notkun hráefnis.
Lesa meira

Tvö ný verkefni innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) með íslenskri þátttöku

Vorið 2002 gerðust Íslendingar aðilar að Norðurslóðaáætlun ESB NPP (Northern Periphery Programme). Áætlunin nær til  norðlægra svæða í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Skotlandi, en einnig til Grænlands, Færeyja og Íslands. Meginmarkmið áætlunarinnar er að stuðla að eflingu atvinnu- og efnahagslífs svæða og byggða með svipaðar aðstæður, með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana í þessum landshlutum. Reynt er að koma í veg fyrir að landamæri þjóðríkja sé hindrun í samstarfi og framþróun byggða og atvinnulífs með það að markmiði  að tækifæri og styrkleikar svæðanna fái notið sín sem best. Verkefnin innan NPP skapa mikilvæg tengsl og þekkingu sem byggja á alþjóðlegri samvinnu og framtaki.
Lesa meira

Íbúafjöldi og þörf á íbúðarhúsnæði á Austurlandi árið 2008. Skýrsla

Út er komið rannsóknarrit nr. 1: Íbúafjöldi og þörf á íbúðarhúsnæði á Austurlandi árið 2008.
Lesa meira

Athugasemdir við skýrslu Stjórnhátta ehf.

Lesa meira

Afgreiðslu lánsumsókna hætt að sinni

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að stofnunin hætti afgreiðslu lánsbeiðna þar til niðurstaða liggur fyrir af hálfu stjórnvalda um framtíðarskipan fjármálastarfsemi Byggðastofnunar.
Lesa meira

Konur og stoðkerfi atvinnulífsins

Þróunarsviði Byggðastofnunar var falið af iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti að sjá um gerð úttektar á því hvaða árangur hefur orðið undanfarin ár af verkefnum sem hafa haft það að markmiði að örva frumkvæði kvenna í atvinnurekstri. Megin tilgangurinn með úttektinni er að afla upplýsinga sem geta orðið grundvöllur að frekari aðgerðum til að efla þátt kvenna í atvinnurekstri. Hlutur kvenna í atvinnurekstri hefur lengi verið talinn of lítill og á síðustu árum hefur ríkisstjórn Íslands með skipulegum hætti leitast við að hvetja konur til frekari þátttöku með ýmsum aðgerðum. Hægt er að nálgast úttektina hér til hægri á síðunni, en hún nefnist Konur og stoðkerfi atvinnulífsins.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389