Fréttir
Þörungaverksmiðjan fær nýtt skip
20 maí, 2011
Grettir BA, nýtt skip Þörungaverksmiðjunnar hf.
lagðist að bryggju á Reykhólum, sunnudaginn 15. maí sl. Skipið hét áður Fossá ÞH og var kúfiskveiðiskip.
Skipið leysir af hólmi skipið Karlsey BA sem þjónað hefur Þörungaverksmiðjunni um langt árabil. Fjöldi fólks var við
Reykhólahöfn að fagna komu Grettis. Slippurinn á Akureyri sá um endurbæturnar en meðal annars var skipt um brú, lestin stækkuð, skipt var
úr fastri skrúfu í skiptiskrúfu, stýrisbúnaður endurnýjaður og keyptur öflugur krani.
Lesa meira
Ársfundur Byggðastofnunar 2011
19 maí, 2011
Ársfundur Byggðastofnunar 2011 verður haldinn miðvikudaginn 25. maí nk. í Höllinni Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst kl. 12:00 með léttum veitingum, og fundarlok eru kl. 16:00. Að loknum hefðbundnum liðum verður haldin ráðstefna undir yfirskriftinni ,,Sóknaráætlanir landshluta og stoðkerfi
atvinnulífsins"
Lesa meira
Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum
19 maí, 2011
Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands
til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu.
Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og 351m3. Stærð lóðar er 808m2. Gjöldin eru
reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2010 og samkvæmt álagningarreglum ársins 2011 eins og þær eru
í hverju sveitarfélagi.
Lesa meira
Stuðningur við atvinnurekstur kvenna skilar árangri
9 maí, 2011
Í mars 2010 veitti Byggðastofnun fjórum hönnuðum styrk til markaðssetningar erlendis. Nú
rúmu ári síðar hefur velta í einu fyrirtækinu aukist um 100% og um 80% í öðru og alls hefur stöðugildum fjölgað um 50%
,,Styrkurinn markaði upphaf útflutnings hjá fyrirtækinu og hefur skipt sköpum fyrir framgang vörunnar erlendis″ (styrkþegi).
Lesa meira
Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar
5 maí, 2011
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 25. maí nk. Á fundinum verður í fyrsta sinn veitt viðurkenning Byggðastofnunar undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“.
Lesa meira
Stofnun Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
28 apríl, 2011
Á lokafundi samráðsvettvangs sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórnvalda miðvikudaginn 27.
apríl, undirrituðu formaður stjórnar Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum og Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar f.h.
stjórnvalda undir samning um stofnun Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Með samningnum er lagður grundvöllur að 4 stöðugildum
atvinnuráðgjafa, og leggja Byggðastofnun og Iðnaðarráðuneytið samtals rúmlega 20 mkr. til samningsins á ári.
Lesa meira
Svæðaráðstefna NORA
21 mars, 2011
Svæðaráðstefna NORA verður haldin í Kaupmannahöfn þriðjudaginn 5. apríl nk. Þar verður kynnt greining sem OECD gerði á starfsvæði NORA sem er Ísland, Grænland, Færeyjar og Noregur. Ráðstefnan er öllum opin. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu NORA.
Lesa meira
Heimsóknir á öskudag
9 mars, 2011
Það voru margar skrautlegar furðuverurnar sem
komu í heimsókn á skrifstofu Byggðastofnunar í dag og sungu fyrir starfsfólk. Ljósmyndari heimasíðunnar smellti af nokkrum myndum og
má sjá þær með því að smella hér.
Lesa meira
Opinber birting fundargerða stjórnar Byggðastofnunar
1 mars, 2011
Á fundi stjórnar
Byggðastofnunar þann 17. desember síðast liðinn var samþykkt að fundargerðir stjórnar Byggðastofnunar verði eftirleiðis birtar opinberlega
á heimasíðu stofnunarinnar að því marki sem lög leyfa, einkum lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þetta er liður í
þeirri viðleitni stofnunarinnar að auka gegnsæi í störfum hennar og treysta stjórnsýslu hennar.
Lesa meira
Ársreikningur 2010
26 febrúar, 2011
Ársreikningur
Byggðastofnunar fyrir árið 2010, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 25. febrúar sl. Tap ársins nam 2.628 mkr. Samkvæmt
ársreikningnum er eigið fé stofnunarinnar neikvætt um 498 mkr. Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -2,4% en skal að
lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember