Fara í efni  

Fréttir

Aðlögun barna flóttafólks að íslenska skólakerfinu

Aðlögun barna flóttafólks að íslenska skólakerfinu

Í nýrri samantekt Fjölmenningarseturs kemur fram að nemendum af erlendu bergi brotnu hefur fjölgað nánast sleitulaust allt frá árinu 2004 á öllum skólastigum. Einnig kemur fram að lágt útskriftarhlutfall þeirra úr framhaldsskólum sé stórt vandamál. Kheirie El Hariri meistaranemi við Háskólann á Akureyri vinnur nú að rannsókn á aðlögun barna flóttafólks að íslenska skólakerfinu þar sem aðstæður eru alla jafna afar ólíkar því sem börn flóttafólks hefur átt að venjast. Því er mikilvægt að huga að leiðum til að auðvelda aðlögun þeirra að skólum.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar – boð um samstarf

Aflamark Byggðastofnunar – boð um samstarf

Á grundvelli reglugerðar nr. 643/2016 auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Tálknafirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Drangsnesi, Hrísey, Raufarhöfn, Bakkafirði og Djúpavogi fiskveiðiárin 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021, 2021/2022, 2022/2023 og 2023/2014. Á grundvelli reglugerðar nr. 1064/2015 auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda í Grímsey fiskveiðiárin 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021, 2021/2022, 2022/2023 og 2023/2014.
Lesa meira
Vöru- og markaðsþróun grásleppuhrogna

Vöru- og markaðsþróun grásleppuhrogna

Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema á háskólastigi sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Styrkirnir koma af fjárveitingu byggðaáætlunar og eru veittir til verkefna sem hafa skírskotun til markmiða eða aðgerða byggðaáætlunar. Tilgangurinn með verkefninu er að auka vitund og áhuga háskólanema á byggðamálum og byggðaþróun og tengsl við byggðaáætlun hverju sinni.
Lesa meira
Samanburður á milli ára

Samanburður á orkukostnaði heimila

Á fundi stjórnar Byggðastofnunar þann. 16. febrúar sl. var kynnt ný samantekt þróunarsviðs Byggðastofnunar um orkukostnað heimila á ársgrundvelli.
Lesa meira
Fjölsótt var á íbúaþingi á Borgarfirði eystri

Fjölmörg tækifæri á Borgarfirði eystri

Íbúaþing var haldið á Borgarfirði eystri 10. - 11. febrúar 2018. Þar kom fram að byggðarlagið hefur fjölmarga möguleika til að þar megi efla byggð til framtíðar, byggða á fjölbreyttri atvinnustarfsemi í hefðbundnum atvinnugreinum og nýsköpun út frá styrkleikum byggðarlagsins, meðal annars náttúru, sögu og mannauði.
Lesa meira
Málþing um raforkumál

Málþing um raforkumál

Byggðastofnun stendur fyrir málþingi um raforkumál á Íslandi fimmtudaginn 8. mars næst komandi í Hofi á Akureyri. Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12:00.
Lesa meira
Atvinnutekjur 2008-2016 eftir atvinnugreinum og svæðum

Atvinnutekjur 2008-2016 eftir atvinnugreinum og svæðum

Út er komin skýrslan Atvinnutekjur 2008-2016 eftir atvinnugreinum og svæðum. Í skýrslunni er leitast við að bregða ljósi á þróun atvinnutekna á tilteknum á svæðum frá árinu 2008 og hvaða atvinnugreinar eru stærstar á hverju svæði mælt í atvinnutekjum.
Lesa meira
Eyrarrósin

Eyrarrósarlistinn 2018

Eyrarrósarlistinn 2018 hefur verið opinberaður og eru það sex verkefni sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár.
Lesa meira
NORA auglýsir verkefnastyrki 2018, fyrri úthlutun

NORA auglýsir verkefnastyrki 2018, fyrri úthlutun

Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfið) er að styrkja samstarf á Norður Atlantssvæðinu. Ein leið að því markmiði er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja, strandhéraða Noregs. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2018. Umsóknarfrestur er 5. mars 2018.
Lesa meira
Afhending Landstólpans 2017

Óskað eftir tillögum til Landstólpans 2018

Landstólpinn, Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Viðurkenningin er hvatning, því hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389