Fara í efni  

Fréttir

mynd: Hjalti Árnason

Ársfundur Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn á Siglufirði fimmtudaginn 11. apríl 2019. Illugi Gunnarsson fráfarandi formaður stjórnar Byggðastofnunar setti ársfundinn og síðan flutti ráðherra byggðamála, Sigurður Ingi Jóhannsson, ávarp. Að því loknu fór Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri yfir starfsemi stofnunarinnar á liðnu starfsári. Í máli hans kom fram að starfsemi Byggðastofnunar gekk mjög vel á árinu 2018 og skilaði góðum afgangi.
Lesa meira
Eva Pandora, Arnhildur Lilý og Andri Þór

Blábankinn á Þingeyri er handhafi Landstólpans 2019

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var á Siglufirði fimmtudaginn 11. apríl, var Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, afhentur í níunda sinn. Að þessu sinni hlaut Blábankinn á Þingeyri viðurkenninguna.
Lesa meira
Úr Grímsey

Ráðherra úthlutar 71,5 milljónum krónum í styrki til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum til sex landshlutasamtaka sveitarfélaga til sjö verkefna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Að þessu sinni var 71,5 milljónum króna úthlutað fyrir árið 2019 til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum. Alls bárust 19 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 278 m.kr. fyrir árið 2019.
Lesa meira
Mynd: Kristján Þ. Halldórsson

„Betri Bakkafjörður“ - fjölþjóðlegt íbúaþing á Bakkafirði leysti kraft úr læðingi

Mikill baráttu- og samstarfsvilji ríkir á Bakkafirði, en helgina 30. – 31. mars sl., var haldið þar vel heppnað tveggja daga íbúaþing, sem markar upphaf að þátttöku samfélagsins á Bakkafirði í verkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir. Að verkefninu standa íbúar á Bakkafirði og nærsveitum, Langanesbyggð, Eyþing og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, ásamt Byggðastofnun. Íbúar völdu verkefninu heitið „Betri Bakkafjörður“.
Lesa meira
Ársfundur Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar

Fimmtudaginn 11. apríl klukkan 13:00 á Siglufirði. Allir velkomnir.
Lesa meira
Boð um þátttöku í könnun - Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi

Boð um þátttöku í könnun - Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi

Könnunin Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla. Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.
Lesa meira
Þrjú samstarfsverkefni með íslenskum þátttakendum fengu styrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPA)

Þrjú samstarfsverkefni með íslenskum þátttakendum fengu styrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPA)

Á stjórnarfundi NPA sem haldinn var í Sundsvall í Svíþjóð um miðjan mars sl. var samþykkt að styrkja sex samstarfsverkefni. Íslenskir aðilar taka þátt í þremum þeirra, alls nemur styrkfjárhæðin um 2,8 milljónir evra en heildarkostnaður um 4,7 milljónir evra.
Lesa meira
Ársreikningur Byggðastofnunar 2018

Ársreikningur Byggðastofnunar 2018

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. mars 2019. Hagnaður ársins nam 113,4 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,45%.
Lesa meira
Íbúaþing á Bakkafirði 30. – 31. mars

Íbúaþing á Bakkafirði 30. – 31. mars

Helgina 30. – 31. mars er íbúum, fjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum samfélagsins við Bakkaflóa boðið til íbúaþings. Þingið markar upphaf að samtali við íbúa í verkefni Byggðastofnunar Brothættum byggðum. Verkefnið er samstarfsverkefni íbúa á Bakkafirði, Langanesbyggðar, Eyþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Byggðastofnunar. Fulltrúar þessara aðila skipa verkefnisstjórn.
Lesa meira
Hluti verkefnisstjórnar á Bakkafirði

Fyrsti fundur verkefnisstjórnar Brothættra byggða á Bakkafirði

Fyrsti fundur nýskipaðrar verkefnisstjórnar í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir á Bakkafirði var haldinn í skólahúsnæðinu á Bakkafirði föstudaginn 15. mars. Á fundinum var farið yfir verklag í Brothættum byggðum og það rætt hvernig verkefnið geti nýst samfélaginu á Bakkafirði.
Lesa meira

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389