Fara í efni  

Fréttir

NORA auglýsir verkefnastyrki 2019, fyrri úthlutun

NORA auglýsir verkefnastyrki 2019, fyrri úthlutun

Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfið) er að styrkja samstarf á Norður Atlantssvæðinu. Ein leið að því markmiði er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja, strandhéraða Noregs. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2019. Umsóknarfrestur er 4. mars 2019.
Lesa meira
List í ljósi á Seyðisfirði handhafi Eyrarrósarinnar 2019

List í ljósi á Seyðisfirði handhafi Eyrarrósarinnar 2019

Frú Eliza Reid forsetafrú veitti List í ljósi frá Seyðisfirði Eyrarrósina 2019 við hátíðlega viðhöfn í Garði nú síðdegis. Viðurkenningin er veitt árlega fyrir afburða menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Frá upphafi hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Air Iceland Connect staðið saman að verðlaununum en þau voru nú veitt í fimmtánda sinn.
Lesa meira
Fjöldi stöðugilda 2013-2017

Hvar eru ríkisstörfin?

Byggðastofnun hefur gert árlega könnun á staðsetningu starfa á vegum ríkisins frá áramótum 2013/2014. Fyrir liggja nú tölur um fjölda stöðugilda til áramótanna 2017/2018. Störfin eru mun fleiri en stöðugildin en við höfum kosið að setja upplýsingarnar fram í fjölda stöðugilda. Þá er miðað við hvar störfin eru unnin, en ekki hvar viðkomandi starfsmaður býr. Tölum er skipt niður á konur og karla.
Lesa meira
Svæðisbundin flutningsjöfnun

Svæðisbundin flutningsjöfnun

Þann 1. mars nk. verður opnað fyrir styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar. Lögbundinn lokafrestur vegna umsókna fyrir árið 2018 er 31. mars 2019.
Lesa meira
Frá undirritun

Samningar undirritaðir vegna styrkja til fjarvinnslustöðva

Þriðjudaginn 5. febrúar undirritaði forstjóri Byggðastofnunar samninga vegna fjögurra verkefna sem styrk hlutu á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Styrkirnir eru vegna fjarvinnslustöðva og heildarfjárhæð styrkja eru 60 milljónir króna.
Lesa meira
Styrkir til rannsókna á sviði byggðamála

Styrkir til rannsókna á sviði byggðamála

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála.
Lesa meira
Mynd: Skúli Gautason

Félag um verslun stofnað í Árneshreppi

Föstudaginn 1. febrúar 2019 var haldinn stofnfundur félags um verslun í Árneshreppi. Verslun lagðist af í hreppnum í haust og hafa íbúar hreppsins þurft að panta vörur og fá þær sendar með flugi, þar sem ekki er mokað að jafnaði í Árneshrepp frá áramótum til 20. mars. Það er því afar áríðandi að koma á verslun fyrir þá íbúa sem hafa vetursetu í Árneshreppi.
Lesa meira
Umsóknir um starf sérfræðings á þróunarsviði

Umsóknir um starf sérfræðings á þróunarsviði

Umsóknarfrestur um starf sérfræðings á þróunarsviði Byggðastofnunar rann út þann 28. janúar. Alls barst 21 umsókn. Yfirferð umsókna er hafin og vonast er til að gengið verði frá ráðningu í starfið í febrúar.
Lesa meira
Eyrarrósarlistinn 2019

Eyrarrósarlistinn 2019

30 umsóknir bárust um Eyrarrósina 2019 hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík. Á Eyrarrósarlistanum birtast nöfn þeirra sex verkefna sem eiga möguleika á að hljóta verðlaunin.
Lesa meira
Skýrsla um Hagvöxt landshluta 2008-2016

Skýrsla um Hagvöxt landshluta 2008-2016

Skýrslan Hagvöxtur landshluta 2008-2016 er komin út. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í samvinnu við þróunarsvið Byggðastofnunar. Á tímabilinu frá bankahruninu 2008 hefur framleiðsla vaxið mest á Suðurlandi, Suðurnesjum og á Norðurlandi eystra.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389