Fara í efni  

Fréttir

evropusamvinna.is

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa kynna styrki og samstarfsmöguleika fimmtudaginn 28. janúar nk. í Háskólanum í Reykjavík (Sólin) kl. 11:00-13:00 og Háskóla Íslands (Háskólatorg) kl. 14:30-16:30.
Lesa meira
Auglýsing um styrki til rannsókna á sviði byggðamála

Auglýsing um styrki til rannsókna á sviði byggðamála

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála árið 2016. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.
Lesa meira
Frá íbúaþinginu - mynd KÞH.

Nýta sérstöðuna og styrkja innviði

Til að efla byggð við Öxarfjörð á að byggja á sérstöðu svæðisins, nýta sóknarfæri sem felast m.a. í matvælavinnslu, ferðaþjónustu og jarðhita og að standa vörð um grunnþjónustuna. Þetta var þátttakendum efst í huga, á íbúaþingi í Öxarfjarðarhéraði, sem haldið var í Lundi, helgina 16.-17. janúar.
Lesa meira
Frá afhendingu Eyrarrósarinnar 2015

Eyrarrósarlistinn 2016 birtur

Eyrarrósarlistinn 2016 birtir nöfn þeirra tíu verkefna sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Verkefnin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg og koma alls staðar að af landinu. Þann 2. febrúar næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
Lesa meira
Íbúaþing fyrir Kópasker og nærsveitir

Íbúaþing fyrir Kópasker og nærsveitir

Íbúaþing fyrir fyrir íbúa á Sléttu, Kópaskeri, Núpasveit, Öxarfirði og Kelduhverfi verður haldið um helgina að Lundi.
Lesa meira
Jólakveðja

Jólakveðja

Óskum viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Starfsfólk Byggðastofnunar
Lesa meira
Female Rural Enterprise Empowerment

Ert þú frumkvöðlakona?

Vinnumálastofnun stýrir Evrópuverkefninu FREE - Female Rural Enterprise Empowerment en verkefnið hefur fengið 40 milljónir í styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Samstarfsaðilar í verkefninu eru sjö talsins og koma frá Bretlandi, Króatíu, Búlgaríu og Litháen en auk Vinnumálastofnunar á Íslandi tekur Byggðastofnun þátt í verkefninu.
Lesa meira
Merki ESPON

Útboð ESPON

ESPON hefur auglýst fyrstu útboð á rannsóknarverkum á nýju starfstímabili. Útboðin eru 7 talsins, undir fyrstu áherslu ESPON, hagnýtar rannsóknir, með heildarfjárstyrk að upphæð tæplega 640 milljónir íslenskra króna. Tilboðum á að skila ýmist 9. eða 10. febrúar 2016.
Lesa meira
Eyrarrósin 2016

Eyrarrósin 2016 auglýsir eftir umsóknum

Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn snemma árs 2016, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Lesa meira
Frá fundi í ráðhúsinu

Fundur með borgarstjóra

Stjórn og starfsfólk Byggðastofnunar og borgarstjóri og starfsmenn Reykjavíkurborgar héldu fund mánudaginn 14. desember 2015 í ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum var rætt um gerði nýrrar byggðaáætlunar fyrir árin 2017-2023 og aðkomu Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að því verkefni. Lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir voru samþykkt á Alþingi þann 30. júní síðast liðinn. Með lögunum er verklag sóknaráætlana fest í sessi og tengt beint við byggðaáætlun. Hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga er varða svæðisbundna áætlanagerð er skilgreint og stýrihópur stjórnarráðsins um byggðamál er lögfestur, en hann á að efla samráð og samhæfingu milli ráðuneyta og tryggja samráð við sveitarstjórnarstigið.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389