Aflamark Byggðastofnunar
Aflamark Byggðastofnunar er hluti svokallaðs 5,3% kerfis, sem einnig hefur verið kallað félagslegi hluti fiskveiðistjórnunarkerfisins. Aðrir hlutar þess eru almennur byggðakvóti, línuívilnun, rækju- og skelbætur, strandveiðar og frístundaveiðar. Aflamark stofnunarinnar byggir á 10. gr. a í lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 sem hljóðar svo:
"Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar aflaheimildir sem ráðherra ákvarðar samkvæmt heimild í 5. mgr. 8. gr. til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun getur gert samninga við fiskvinnslur eða útgerðarfélög til allt að sex ára í senn. Byggðastofnun skal hafa samráð við sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags áður en samningur er undirritaður. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít, ufsa, löngu, keilu og gullkarfa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við þorskígildi og skulu þær dregnar frá með sama hætti og greinir í 3. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 5. mgr. sömu greinar. Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum Byggðastofnunar, að setja nánari ákvæði um Aflamarkframkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð, svo sem efni samnings, skilyrði og tímalengd."
Á grundvelli lagagreinarinnar hefur verið sett reglugerð nr. 643/2016 um ráðstöfun og meðferð þeirra aflaheimilda sem greinin fjallar um. Í henni er nánar fjallað um val byggðarlaga, skiptingu þess aflamarks sem um ræðir á milli byggðarlaga og samningsaðila í þeim, umsóknarferli, samráð við sveitarstjórn, skilyrði fyrir úthlutun og framkvæmd hennar, veiðar og vinnslu, framsal aflamarks og eftirlit með samningum.
Árlega hefur stofnuninni verið falið að úthluta um 5.000 þorskígildistonnum sem byggir á ákvörðun ráðherra hverju sinni. Á fiskveiðiárinu 2023/2024 eru í gildi 14 samningar í 12 byggðarlögum og má sjá magn í þorskígildistonnum á hverjum stað á myndinni hér að neðan.
Frekari upplýsingar um verkefnið, tilgang þess, markmið og framkvæmd er að finna hér til vinstri á síðunni undir „Spurt og svarað“. Einnig veita sérfræðingar Byggðastofnunar allar frekari upplýsingar í gegnum netfangið aflamark@byggdastofnun.is
Verklagsreglur um aflamark Byggðastofnunar og aflamarksnefnd.
Tenglar á lög og reglugerð: