Fara í efni  

Fréttir

Tekjur á hvern íbúa mismunandi eftir svæðum

Tekjur á hvern íbúa mismunandi eftir svæðum
Skjáskot úr mælaborði

Árið 2023 voru heildartekjur á hvern íbúa um 11 milljónir króna í Vestmannaeyjum en undir 6 m.kr. í Húnavatnssýslum, Borgarfirði & Dölum og Suðurnesjabæ & Vogum. Talsverður munur var einnig milli hæstu og lægstu upphæðar atvinnutekna á hvern íbúa en þær voru um 6 milljónir í Fjarðabyggð, Garðabæ og á Seltjarnarnesi en um 4 m.kr. í Húnavantssýslum, Borgarfirði & Dölum og Rangárvallasýslu.

Þetta má m.a. sjá í mælaborði Byggðastofnunar og lesa um í skýrslu sem birt er í dag um tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2023. Gögn eru fengin af vef Hagstofu Íslands sem vinnur þau úr upplýsingum frá Skattinum og eru allar upphæðir á verðlagi ársins 2023.

Heildartekjur einstaklinga námu 2.632 milljörðum króna árið 2023. Með heildartekjum er átt við samanlagðar atvinnutekjur, lífeyrisgreiðslur, fjármagnstekjur, bætur frá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum, atvinnuleysisgreiðslur, fæðingarorlofsgreiðslur, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og aðrar staðgreiðsluskyldar tekjur. Atvinnutekjur voru 1.900 milljarðar og er opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi, heilbrigðis-og félagsþjónusta stærsta atvinnugreinin með um 566 milljarða eða rúm 30%. 

Hlutdeild atvinnutekna í heildartekjum er nokkuð mismunandi milli landshluta. Á Austurlandi og Suðurnesjum voru atvinnutekjur 76% heildartekna einstaklinga en lægsta hlutdeild atvinnutekna var 65% á Suðurlandi og 69% á Norðurlandi vestra. Sé litið til einstakra sveitarfélaga sést að árið 2023 voru atvinnutekjur á íbúa hæstar í Fjarðabyggð og Mýrdalshreppi eða rúmar 6 milljónir kr. Atvinnutekjur voru undir 4 milljónum á hvern íbúa í Húnavatnssýslum árið 2023.

Hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum er töluvert ólík milli landshluta og enn fjölbreyttari ef horft er á tekjusvæði eða sveitarfélög. Framleiðsla án fiskvinnslu var áfram mikilvægust fyrir tvo landshluta, Vesturland og Austurland, þar sem hlutdeild greinarinnar í heildaratvinnutekjum árið 2023 var 18%. Flutningar og geymsla hefur lang hæstu hlutdeild á Suðurnesjum eða 20% og rekstur gisti- og veitingastaða hefur hæstu hlutdeild á Suðurlandi 11%. Sjávarútvegur (veiðar og vinnsla) var hlutfallslega mikilvægastur fyrir atvinnutekjur Vestfjarða og Austurlands þar sem hlutdeild greinarinnar var ríflega 20%.

Fjármagnstekjur geta verið mjög mismunandi eftir svæðum og árum því að fáir einstaklingar geta hagnast um háar upphæðir á stöku ári, svo sem vegna sölu fyrirtækja. Á Suðurlandi var hlutfall fjármagnstekna 15% sem var hæsta gildi allra landshluta árið 2023. Árið 2022 var hlutdeild fjármagnstekna 8% á Suðurlandi en hæst 14% á Suðurnesjum.

Skýrsla Byggðastofnunar inniheldur eingöngu helstu niðurstöður en í mælaborði sem kemur út samhliða skýrslunni er hægt að skoða tölur um stöðu og þróun tekna eftir svæðum og kyni. Þar er jafnframt hægt að skoða hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum eftir svæðum.

Samkvæmt gildandi byggðaáætlun og lögum um Byggðastofnun á stofnunin að fylgjast með byggðaþróun og helstu áhrifaþáttum hennar með úrvinnslu opinberra gagna og eigin gagnasöfnun.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389