Fréttir
Stöðugreiningar landshluta
Sóknaráætlanir landshluta eru eitt af 29 verkefnum Ísland 2020. Markmiðið með verkefninu er að færa ákvarðanatöku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna á hverjum stað. Það er m.a. gert með því að veita landshlutunum aukin völd og aukna ábyrgð á forgangsröðun og útdeilingu almannafjár til verkefna á sviði byggða- og samfélagsþróunar sem ekki eru falin öðrum með lögum.
Landshlutarnir átta hafa allir hafið vinnu við gerð sóknaráætlunar. Stofnað hefur verið til samráðsvettvangs á hverju svæði með fulltrúum sveitarstjórna og hagsmunaaðila. Hlutverk samráðsvettvangsins er að koma sér saman um framtíðarsýn og móta stefnu og forgangsraða markmiðum og aðgerðum fyrir hvern landshluta. Ábyrgð á sóknaráætlun og útdeilingu fjármuna er hjá stjórn landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Verklagið sem sóknaráætlanir fela í sér er nýsköpun í íslenskri stjórnsýslu og segja má að sóknaráætlanir byggi á þrenns konar samvinnu: Samvinnu ráðuneyta í gegnum stýrinet Stjórnarráðsins skipað fulltrúum allra ráðuneyta auk Sambands íslenskra sveitarfélaga, samvinnu sveitarfélaga í gegnum landshlutasamtök þeirra og samráðsvettvanga, sem og samvinnu stjórnsýslustiganna tveggja.
Að beiðni stýrinets Stjórnarráðsins hefur Byggðastofnun unnið stöðugreiningu á nokkrum mikilvægum samfélagsþáttum fyrir alla landshluta. Stöðugreiningin nýtist vel í upphafi sóknaráætlana þannig að hægt er að bera saman þróun þeirra milli tímaskeiða í hverjum landshluta og á milli landshluta. Lokadrög þessara greininga er hægt að sækja hér. Stöðugreiningarnar eru settar fram á myndrænan hátt með stuttum texta til þess að auðvelda samanburð nokkurra mikilvægra þátta og umræður um sóknaráætlanirnar. Ætlunin er að uppfæra stöðuna í hverjum þætti og gera grunngögn aðgengileg á heimasíðu Byggðastofnunar.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember