Fara í efni  

Fréttir

Stöðfirðingar taka virkan þátt í mótun síns samfélags

Stöðfirðingar taka virkan þátt í mótun síns samfélags
Valborg Ösp verkefnisstjóri Sterks Stöðvarfjarðar

Í árlegri heimsókn starfsfólks Byggðastofnunar til Stöðvarfjarðar á íbúafund kom berlega í ljós að Stöðfirðingar hafa tekið höndum saman um að nýta verkefnið Brothættar byggðir/Sterkan Stöðvarfjörð til fulls.

Það hefur verið líf og fjör á Stöðvarfirði í sumar og rífandi gangur í ýmsum frumkvæðisverkefnum íbúa sem m.a. hafa verið styrkt af Frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar. Þar má nefna að Kaffibrennslan Kvörn hefur staðið í standsetningu á húsnæði sínu sem er að finna í Sköpunarmiðstöðinni. Fyrirtækið Brauðdagar hefur aukið umsvif sín, m.a. haldið svokallaða smakkdaga ásamt því að sjá um veitingar á Steinasafni Petru, Kaffi Sunnó. Unnið er að rafrænu göngukorti sem á eftir að nýtast íbúum og gestum vel.  Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir inn á Stöð. Sett hefur verið upp fyrsta skiltið sem segir frá sögu útgerðar á Stöðvarfirði á grjótgarðinn niður við Sköpunarmiðstöðina. Boðið hefur verið upp á jógagöngur og heilsueflandi daga, sá næsti er áformaður 14. sept. nk. og fleira mætti telja. Nú hillir undir að lokið verði við ljósleiðaravæðingu á Stöðvarfirði en áform eru um að því verkefni ljúki fyrir árslok 2026. Slík framkvæmd verður án efa bylting fyrir Stöðfirðinga.

Íbúafundurinn var haldinn 29. ágúst sl. og var vel sóttur. Á fundinum fór Valborg Ösp verkefnisstjóri yfir stöðu styrktra verkefna og hvaða árangri hefur verið náð skv. starfsmarkmiðum í verkefnisáætlun sem skilgreind var út frá skilaboðum íbúa í upphafi verkefnis. Tvö styrkt frumkvöðlaverkefni voru kynnt, Brauðdagar og skiltaverkefni um útgerðarsögu Stöðvarfjarðar. Að því loknu ræddu íbúar í nokkrum umræðuhópum um áherslur og markmið samkvæmt verkefnisáætlun og hvaða málefni beri að leggja áherslu á þar sem verkefnið er komið á seinni hluta verktímabilsins, en gert er ráð fyrir samkvæmt samningi að Byggðastofnun muni draga sig í hlé úr verkefninu í árslok 2025. Það er því ein úthlutun úr Frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar eftir á árinu 2025. Sem fyrr var íbúafundurinn líflegur og frjóar umræður sköpuðust um málefni Stöðvarfjarðar. Kimi frá fyrirtækinu Brauðdögum sá um að næra fundargesti með ljúffengri súpu og súrdeigsbrauðum auk sætabrauðs með kaffinu.

Fyrr um daginn skoðuðu fulltrúar verkefnisstjórnar Steinasafn Petru og fengu góða leiðsögn um safnið, nutu útiveru í jógagöngu í Nýræktinni og á nýjum göngustígum undir stjórn Solveigar Friðriksdóttur, skoðuðu húsakynni hjá Kaffi Kvörn og brögðuðu á eðalkaffi og fengu bakkelsi frá Brauðdögum. Enn fremur voru skoðaðar framkvæmdir við fornleifauppgröft inn á Stöð, litið við í Gallerí Snærós og í Salthúsmarkaðinn. Hvar sem komið var, var gaman að sjá kraftinn í Stöðfirðingum og þá atorkusemi sem birtist í viðfangsefnum þeirra.

Fulltrúar Byggðastofnunar heimsóttu einnig starfsfólk Austurbrúar á leið sinni um Austurland og áttu gagnlegt samtal um ýmis málefni sem snerta byggðaþróun í landshlutanum.

Eftirfarandi myndir voru teknar í ferð starfsfólks Byggðastofnunar til Austurlands. Myndasmiðir voru Kristján Þ. Halldórsson og Helga Harðardóttir.

Í Steinasafni Petru. Unnur Sveinsdóttir segir frá sögu safnsins.

 

Jógaganga með Solveigu Friðriksdóttur.

 

 Fyrsta skiltið um útgerðarsögu Stöðvarfjarðar.

 

 Heimsókn í kaffibrennsluna Kvörn.

 

 Innlit í Salthúsmarkaðinn.

 

 Fornleifauppgröftur á Stöð undir leiðsögn Björgvins Vals Guðmundssonar.

 

 Kimi kynnir fyrirtækið sitt, Brauðdaga.

 

 Íbúafundur á Stöðvarfirði.

 

 Vinnuhópur á íbúafundi.

 

Heimsókn til starfsfólks Austurbrúar.

 

Nánari upplýsingar veita Helga Harðardóttir og Kristján Þ. Halldórsson hjá Byggðastofnun.

 

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389