Fara í efni  

Fréttir

Sterkar Strandir – mörg áhugaverð verkefni í Strandabyggð

Fimmtudaginn 20. febrúar var haldinn lokaíbúafundur verkefnisins Sterkar Strandir hvað þátttöku Byggðastofnunar áhrærir. Verkefnið hófst í júní 2020 eftir nokkrar tafir vegna heimsfaraldurs og hefur staðið í á fimmta ár. Aðalsteinn Óskarsson fulltrúi Fjórðungssambands Vestfirðinga í verkefnisstjórn stýrði fundinum.

Staða í lok verkefnis

Á fundinum fór fráfarandi verkefnisstjóri, Sigurður Líndal, yfir nokkur atriði og skýrði framtíðarsýn verkefnisins og framgang í vinnu að markmiðum verkefnisins. Þar er vinna mislangt komin en ýmis mál hafa þokast vel áfram eða markmiðum náð. Einnig ræddi hann um frumkvöðlaverkefni sem hafa hlotið styrki úr Frumkvæðissjóði Sterkra Stranda á árunum 2020-2024. Alls voru veittir 73 styrkir til frumkvæðisverkefna og heildarupphæðin er 73.020.000 krónur. Vinnu við þessi verkefni er að mestu lokið. Sigurði voru þökkuð góð störf í þágu samfélagsins og verkefnisins Sterkra Stranda.

Niðurstöður íbúakönnunar

Umsjónarfólk Brothættra byggða á landsvísu hjá Byggðastofnun og fulltrúar í verkefnisstjórn Sterkra Stranda fóru yfir niðurstöður könnunar sem gerð var meðal íbúa í Strandabyggð um mánaðamótin janúar - febrúar 2025. Í könnuninni var markmiðið að kanna viðhorf íbúa til atvinnu- og búsetumála í sveitarfélaginu, auk upplifunar af verkefninu Sterkar Strandir. Í svörunum kom meðal annars fram að íbúum líður almennt vel í Strandabyggð og mikill meirihluti telur líklegast að viðkomandi muni búa þar áfram. Segja má að viðhorf til verkefnisins Sterkra Stranda séu sumpart blendin. Sjón er sögu ríkari og niðurstöður könnunarinnar má sjá hér í kynningu Byggðastofnunar.

Kynningar frumkvöðla

Þrír frumkvöðlar kynntu sín verkefni. Jamie Lee kynnti verkefni sitt um uppbyggingu á vinnsluaðstöðu matvæla í Kuklinu á Hólmavík, en það er aðstaða sem búið er að innrétta í fyrrum fiskvinnsluhúsi á Hólmavík.

Finnur Ólafsson kynnti verkefnið Galdur Brugghús og uppbyggingu aðstöðu þar. Félagið hefur komið sér upp góðri aðstöðu í fyrrum fiskvinnsluhúsi en í húsinu hefur Finnur einnig leitt verkefni um uppbyggingu aðstöðu fyrir aðra frumkvöðla undir heitinu Kuklið, með stuðningi úr C.1 potti byggðaáætlunar á árinu 2024.

Röfn Friðriksdóttir kynnti verkefni um uppbyggingu aðstöðu fyrir fótsnyrtingu í fyrrum skrifstofuaðstöðu Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Verið er að standsetja húsnæðið en sú vinna er langt komin. Hún hyggst einnig bjóða upp á fleiri þjónustuþætti svo sem handsnyrtingu og svæðanudd.

Strandabyggð bauð að þessu loknu upp á veitingar fyrir fundargesti.

Eftirfylgni Sterkra Stranda

Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri, var með erindi um eftirfylgni við verkefnið Sterkar Strandir en Strandabyggð hefur nú tekið við keflinu og mun leiða verkefnið áfram. Í því samhengi var fundargestum skipað í þrjá hópa þar sem framtíðarskipulag þessarar vinnu var rætt. Fulltrúar hvers hóps gerðu grein fyrir niðurstöðum í lok umræðu. Þar kom fram að áhugi er á að fylgja verkefninu eftir.

Lokaávarp

Í lok fundar flutti Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar, ávarp og nefndi m.a. að margt jákvætt hefði komið fram í niðurstöðum könnunar meðal íbúa sem vert væri að byggja á. Hún þakkaði að lokum samstarfsaðilum, íbúum  Strandabyggðar, Vestfjarðastofu og sveitarfélaginu Strandabyggð fyrir samstarfið í verkefninu Sterkrar Strandir og óskaði Strandamönnum velfarnaðar í framtíðinni.

 

Lokaíbúafundur í Strandabyggð

 

Hópavinna um eftirfylgni við verkefnið.

 

Hópavinna um eftirfylgni við verkefnið.

 

Hópavinna um eftirfylgni við verkefnið.

 

 Helga Harðardóttir kynnir niðurstöður íbúakönnunar.

 

Þorgeir Pálsson sveitarstjóri kynnir áform um eftirfylgni við verkefnið.

 

Jamie Lee kynnir frumkvöðlaverkefni.

 

Hluti verkefnisstjórnar Sterkra Stranda. Á myndina vantar Guðrúnu Áslu Atladóttur fulltrúa íbúa og Magneu Garðarsdóttur fulltrúa Vestfjarðastofu.

 

Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs hjá Byggðastofnun, flytur lokaávarp.

 

 


Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389