Fréttir
Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2024
Líkt og undanfarin ár hefur Byggðastofnun fengið Orkustofnun til að reikna út árlegan kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á flestum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m² að grunnfleti og 350m³. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, s.s. ljós og heimilistæki, en miðað er við 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun án varmadælu en 14.200 kWst með varmadælu.
Nú er komin út skýrsla um orkukostnað heimila m.v. gjaldskrár 1. september 2024. Alls eru 92 byggðakjarnar í greiningunni og ná tölur fyrir þá aftur til ársins 2014. Samhliða skýrslunni kemur út mælaborð þar sem hægt er að skoða orkukostnað í byggðakjörnum á Íslandskorti, skoða raforku- og húshitunarkostnað sér og bæta við útreikningi fyrir varmadælu fyrir staði með beina rafhitun.
Raforka
Lægsta mögulega raforkuverð fyrir viðmiðunareignina, með flutnings- og dreifingarkostnaði, fæst hjá Veitum á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi, um 99 þ.kr. Hæsta gjald í skilgreindu þéttbýli er um 119 þ.kr. hjá Orkubúi Vestfjarða en raforkuverð eru hærri í dreifbýli, hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða, eða um 136-141 þ.kr. á ári fyrir viðmiðunareign.
Bilið milli raforkuverðs í þéttbýli og dreifbýli minnkaði mikið árið 2021 vegna aukins dreifbýlisframlags en árið 2024 jókst það aftur nokkuð. Árið 2024 hækkaði raforkuverð fyrir viðmiðunareign í þéttbýli um 4,5-7,8%, nema hjá HS Veitum þar sem raforkuverð lækkaði um 2,5%. Í dreifbýli hækkaði raforkuverð viðmiðunareignar hins vegar meira, eða um 7,7% hjá RARIK og 14,9% hjá Orkubúi Vestfjarða.
Húshitun
Þegar kemur að húshitunarkostnaði er munurinn á milli svæða mun meiri en á raforkuverði. Lægsti mögulegi kostnaður þar sem húshitun er dýrust er um þrefalt hærri en þar sem hún er ódýrust. Húshitunarkostnaður var fram til ársins 2021 hæstur á stöðum þar sem þarf að notast við beina rafhitun. Lægsta verð fyrir húshitun með rafmagni hefur þó lækkað talsvert síðustu ár, m.a. vegna niðurgreiðslna á dreifi- og flutningskostnaði. Sú þróun hefur gert það að verkum að lægsti mögulegi kostnaður fyrir beina rafhitun er nú orðinn lægri en þar sem eru dýrar hitaveitur.
Lægsti húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign er í Brautarholti á Skeiðum 75 þ.kr. og á Flúðum um 83 þ.kr. Hæsti húshitunarkostnaðurinn er í Grímsey um 281 þ.kr., þar sem er olíukynding. Þar fyrir utan er húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign hæstur 252 þ.kr. á Grenivík og 243 þ.kr. á Höfn og í Nesjahverfi í Hornafirði.
Heildarorkukostnaður
Heildarorkukostnaður, þ.e.a.s. raforku- og húshitunarkostnaður viðmiðunareignar, er hæstur í Grímsey 427 þ.kr. þar sem rafmagn er framleitt með díselrafstöð og húsin kynt með olíu. Þar fyrir utan er heildarkostnaður hæstur í Nesjahverfi í Hornafirði 378 þ.kr. og á Grenivík 364 þ.kr. Þar næst koma staðir með rafhitun sem skilgreinast jafnframt sem dreifbýli hvað raforkudreifingu varðar, þ.e. Súðavík, Bakkafjörður og Borgarfjörður eystri. Lægsti heildarorkukostnaður landsins er á Flúðum 195 þ.kr. en þar næst í Laugarási 200 þ.kr.
Nánari upplýsingar má sjá í meðfylgjandi skýrslu.
Fréttasafn
- 2025
- janúar
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember