Fréttir
Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna verslunar í strjálbýli
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna verslunar í strjálbýli, sbr. aðgerð A.9 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið með aðgerðinni er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustukjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin geta nýst til að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, m.a. með samspili við aðra þjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bættri aðkomu. Ráðgert er að styðja 3-4 verkefni. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 19. nóvember 2018.
Verslunarrekendur eða þeir sem hyggja á verslunarrekstur á skilgreindum svæðum geta sótt um þau framlög sem auglýst eru. Verslanirnar þurfa að vera í a.m.k. 150 km akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, 75 km akstursfjarlægð frá Akureyri og 40 km akstursfjarlægð frá byggðakjörnum með yfir 1.000 íbúa, eða í Grímsey og Hrísey. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Við mat á umsóknum verður meðal annars stuðst við rekstraráætlun fyrir árið 2019, ársreikninga síðustu tveggja ára og fyrirhugaða starfsemi.
Framlög vegna sértækra verkefna sóknaráætlana (C.1) og fjarvinnslustöðva (B.8) hafa þegar verið auglýst og á næstunni verður opnað fyrir framlög vegna verkefna á sviði almenningssamgangna. Framangreindar úthlutanir byggja á reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er þeim ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.
Fylgiskjöl:
Auglýsing um framlög vegna verslunar í strjálbýli
Rafrænt umsóknareyðublað um framlög vegna verslunar í strjálbýli
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember