Fréttir
NORA styrkir samstarf á Norður-Atlantssvæðinu
Norræna Atlantssamstarfið (NORA) vill efla samstarf á Norður-Atlantssvæðinu.
Ein leiðanna að þessu markmiði er veiting styrkja tvisvar á ári til samstarfsverkefna með þátttöku að lágmarki tveggja af fjórum aðildarlöndum NORA (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og sjávarbyggðum Noregs).
NORA óskar því eftir verkefnahugmyndum og styrkumsóknum með umsóknarfrest þann 1. október 2012.
NORA hefur nú kynnt nýja fimm ára skipulagsáætlun sem finna má á heimasíðunni, nora.fo, þar sem bent er á meginviðfangsefni á svæðinu og hvar áherslur liggja varðandi verkefnastuðning á tímabilinu 2012–2016:
- Að styrkja sterku hliðarnar enn frekar með stuðningi við sjálfbæra þróun efnahagslega mikilvægustu atvinnugreina svæðisins. Það verður gert með því að styrkja nýsköpunarverkefni á sviði sjávarútvegs og auðlinda hafsins. Það geta til að mynda verið verkefni sem snerta aukaafurðir og vannýttar auðlindir.
- Að skapa ný tækifæri og efla fjölbreytni svæðisbundinna hagkerfa með því að styðja þróun nýrra atvinnutækifæra, framleiðslu, framleiðsluaðferða og markaðssetningar, t.d. verkefni í ferðaþjónustu, landbúnaði eða verkefni sem varða endurnýjanlegra orkugjafa.
- Að sigrast á fjarlægðum, sem er eitt stærsta viðfangsefni á NORAsvæðinu og því verður mætt með því að styrkja verkefni á sviði fjarskipta, samgangna og flutninga og athafnamiðaðra greininga. Verkefnin geta t.d. varðað þróun upplýsingatækni sem henta sérstökum aðstæðum á Norður-Atlantssvæðinu eða eru til þess fallin að fjölga störfum í fámennum byggðarlögum eða á jaðarsvæðum.
Auk þessa hefur NORA áhuga á að efla samstarf við nágranna norðurslóða til vesturs. Þess vegna vill NORA gjarnan styrkja verkefni þar sem um samstarf NORA-landanna við Kanada og skosku eyjarnar er að ræða.
NORA veitir styrki að hámarki 500.000 danskar krónur á ári og mest til þriggja ára. Skilyrði er að þátttaka sé frá a.m.k. tveimur NORA-löndum.
Á heimasíðu NORA, nora.fo er að finna leiðbeiningar um umsóknarferilinn undir valtakkanum „Guide til projektstøtte“.
Þá er umsækjendum velkomið að leita til skrifstofu NORA um nánari upplýsingar og ráðgjöf.
Tengiliður á Íslandi er: Sigríður Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun.
Umsóknareyðublaðið er að finna á heimasíðu NORA og senda á umsóknina rafrænt (á word-formi) til NORA og sömuleiðis útprentaða og undirritaða umsókn með pósti. Fylgigögn, eins og verklýsing og annað ítarefni, sendist rafrænt (á word, excel eða pdf-formi).
Norræna Atlantssamstarfið (NORA) er verkefnasamstarf milli Færeyja, Grænlands, Íslands og strandhéraða Noregs og heyrir undir norrænu ráðherranefndina, sem fjármagnar starfsemina ásamt fjárframlagi þátttökulandanna.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember