Fréttir
Menningarráðgjafi
Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum 28. maí 1999 með vísan til erindis menntamálaráðherra að gera með skipulögðu starfi á landsbyggðinni list og menningu að einum af grundvallarþáttum í byggðamálum. Þessi starfsemi nái bæði til atvinnu og áhugastarfa og taki mið af ályktun Alþingis um byggðamál sem samþykkt var á síðasta þingi.
Í samþykktinni fólst að ráðinn skyldi sérstakur starfsmaður lista og menningar er heyrði undir þróunarsvið Byggðastofnunar. Leitað yrði eftir við þau atvinnuþróunarfélög, sem væru með samning við Byggðastofnun um atvinnu- og byggðamál, að þau gerðust aðilar að þessari starfsemi með því að gera list og menningu að föstum lið í starfsemi sinni. Þau félög sem ákvæðu að sinna þessari starfsemi á þessu ári fengju framlag frá Byggðastofnun er nemi 1 milljón króna. Fullt samráð skyldi hafa við menntamálaráðuneytið um framgang þessara mála.
Menningarráðgjafi tók til starfa 1.ágúst 1999 og var starfssvið hans skilgreint sem hér greinir:
Að taka saman og miðla upplýsingum um stöðu menningarmála á landsbyggðinni.
-
Stefnu, fjármögnun og rekstur menningarstofnana ríkis og sveitarfélaga á landsbyggðinni.
-
Stefnu, rekstur og verkefni menningarstofnana með hlutverk á landsvísu.
-
Stefnu og rekstur einkaaðila í menningarmálum á landsbyggðinni.
-
Stefnu, fjármögnun og verkefni áhugamanna í menningarmálum á landsbyggðinni.
Að veita ráðgjöf þeim aðilum sem sinna menningarmálum á landsbyggðinni.
-
Ráðgjöf og aðstoð við stefnumótun sveitarfélaga s.s. varðandi listmenntun, safnastarf, varðveislu menningarminja.
-
Ráðgjöf við atvinnuþróunarfélög um menningarstarfssemi.
-
Ráðgjöf og aðstoð við menningarstofnanir og aðra aðila sem hyggja á verkefni á sviði menningarmála á landsbyggðinni.
Að efla samstarf og tengsl þeirra er starfa að menningarmálum á landsbyggðinni.
-
Að koma á samstarfsneti Byggðastofnunar, atvinnuþróunarfélaga, sveitarfélaga og annarra aðila er bera ábyrgð á menningarmálum á landsbyggðinni.
-
Að auka samstarf skólastofnana á menningarsviði við aðila á landsbyggðinni.
Að stunda rannsóknir á sviði menningarmála á landsbyggðinni
-
Að hafa frumkvæði að og efla samstarf um rannsóknir á sviði menningarmála á landsbyggðinni.
-
Að veita ráðgjöf og aðstoð vegna rannsókna á menningarmálum á landsbyggðinni.
-
Að stunda eigin rannsóknir á menningarmálum landsbyggðarinnar.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember