Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar forsenda fiskvinnslu á Hólmavík

Frá Hólmavík Mynd: Kristján Þ. Halldórsson

Úthlutun aflamarks Byggðastofnunar upp á 500 þorskígildistonn á yfirstandandi fiskveiðiári til Hólmavíkur hefur þegar leitt til þess að heimaaðilar hafa komið upp fiskvinnslu á staðnum. Eins og kunnugt er var rækjuvinnslu hætt á Hólmavík í sumarbyrjun 2023 og misstu þá 20 manns vinnuna. Í framhaldi af erindi frá Strandabyggð ákvað Byggðastofnun að auglýsa eftir samstarfsaðilum um nýtingu á allt að 500 þorskígildistonnum á þessu fiskveiðiári. Í vor voru svo auglýst 500 tonn til næstu sex fiskveiðiára.

Sú hvatning sem þessi úthlutun felur í sér hefur nú leitt til þess að stærstur hluti útgerðaraðila á staðnum hefur sameinast um nýtingu þessa aflamarks til veiða og vinnslu. Úthlutunin er skilyrt vinnslu á staðnum og þannig er stuðlað að því að sem stærstur hluti virðiskeðjunnar sé staðsettur í byggðarlaginu. Eins og fram hefur komið í Fiskifréttum eru þegar 12 starfsmenn í vinnslunni auk þess sem úthlutunin styrkir stoðir útgerðar á staðnum.

Aðstandendum verkefnisins er óskað velfarnaðar í því og að það megi verða einn þáttur í styrkingu atvinnulífs og þar með búsetugæða á svæðinu.   

Frétt Fiskistofu má finna hér:

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389