Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf í Grímsey

Á grundvelli reglugerðar nr. 1256/2024 um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda án vinnsluskyldu auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda í:

  • Grímsey í Akureyrarbæ – allt að 300 þorskígildistonn

fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026, 2026/2027.

 Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem :

  • standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi eða ætla megi að samdráttur í greininni myndi skapa slíkan vanda
  • eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu
  • eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða

 Í því skyni er að stefnt að uppbygginu í sjávarútvegi sem:

  • skapar og viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum
  • stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma

 Endanlegt val á samstarfaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:

  • trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi
  • fjölda heilsársstarfa
  • sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðalaginu
  • öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina
  • jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið
  • traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda
  • lönduðum botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2024.

Magn aflaheimilda er með fyrirvara um úthlutun matvælaráðuneytisins til Aflamarks Byggðastofnunar ár hvert.

Umsóknum sem ekki falla að markmiðum verkefnisins verður hafnað.

Reglugerð nr.1256/2024 um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda samkvæmt 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og verklagsreglur um aflamark án vinnsluskyldu.

Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar í gegnum umsóknargátt á heimasíðu stofnunarinnar www.byggdastofnun.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 10. desember 2024.  Þar er einnig að finna upplýsingar um verkefnið.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Byggðastofnunar í gegnum netfangið aflamark@byggdastofnun.is og í síma 455-5400.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389