Fréttir
Úthlutun úr Lóu - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Samkvæmt frétt Stjórnarráðsins um úthlutunina bárust alls 100 umsóknir um styrki í Lóu í ár, en umsóknarfrestur rann út 11. maí sl. Verkefnin 21 eru fjölbreytt og teygja anga sína út um allt land, allt frá vöruþróun úr þörungum og rannsóknum á nýtingu sjávarfalla, yfir í stuðning við frumkvöðla og sprotafyrirtæki á landsbyggðinni. Samkvæmt fyrrnefndri frétt Stjórnarráðsins er ljóst á þeim umsóknum sem bárust að mikill áhugi virðist nú vera á nýtingu og sköpun verðmæta úr þörungum um allt land.
Lóa var sett á laggirnar á síðasta ári í kjölfar endurskoðunar á nýsköpunarstefnu Íslands og niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Lóa er einnig hugsuð sem stuðningur við sóknaráætlanir landshlutanna og byggðaáætlun og miðar m.a. að því að að fjölga umsóknum frá landsbyggðinni í Tækniþróunarsjóð Rannís og aðra sjóði með því að veita sterkum verkefnum brautargengi og fjármagn til að komast lengra.
Nýsköpun er kraumandi í byggðum landsins, nú sem aldrei fyrr. Byggðastofnun óskar styrkhöfum til hamingju með úthlutanirnar.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember