Fara í efni  

Fréttir

Umsóknarfrestur í Byggðarannsóknasjóði

Byggðastofnun hefur veitt styrki úr Byggðarannsóknasjóði allt frá árinu 2015. Til úthlutunar eru 10 m.kr. árlega. Alls hafa 20 verkefni hlotið styrk á árunum 2015-2019 að heildarfjárhæð 48,9 m.kr. Nú er auglýst eftir umsóknum í sjóðinn og þurfa þær að berast eigi síðar en fimmtudaginn 12. mars nk.

Á árinu 2019 bárust sex umsóknir. Ákveðið var að styrkja þrjú verkefni:

Rannsókn um nytja- og minjagildi torfhúsa. Styrkþegi, Háskólinn á Hólum í Hjaltadal, styrkfjárhæð 3,5 m.kr.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf landsmanna og ferðamanna til þess minjaarfs sem felst í torfhúsum. Einnig á að skrá, staðsetja og lýsa þessum menningarminjum og skoða hvaða sess torfhús hafa varðandi ferðaþjónustu og minjavernd. Afraksturinn mun nýtast til stefnumótunar í minjavörslu og til jákvæðrar byggðaþróunar.

Betri búskapur – bættur þjóðarhagur. Styrkþegi, Landbúnaðarháskóli Íslands, styrkfjárhæð  3 m.kr.
Gera á greiningu á þróun í landbúnaði með áherslu á sauðfé og mjólkurframleiðslu og borið saman við nágrannalöndin. Lagt verður mat á framtíðartækifæri til matvælaframleiðslu hér á landi og skoðað hvernig efla megi starfsemi og aðstöðu Landbúnaðarháskólans.

Sínum augum lítur hver á silfrið: Búsetuskilyrði og blæbrigði þeirra. Styrkþegi, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, styrkfjárhæð 2,4 m.kr.
Greina á óskir og þarfir landsmanna varðandi búsetuskilyrði, greina stöðu og mikilvægi búsetuskilyrða út frá sjónarmiði borgarbúa og íbúa afskekktari byggða. Unnið verður út frá kenningum Tiebout um staðbundið skynvirði, en greiningin byggir á íbúakönnun sem gerð var á stórum hluta landsins. 

Umsóknareyðublöð má nálgast hér.

Reglur um sjóðinn má nálgast hér.

Starfsreglur stjórnar

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389