Fréttir
NORA auglýsir verkefnastyrki 2020, fyrri úthlutun
Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfið) er að styrkja samstarf á Norður Atlantssvæðinu. Ein leið að því markmiði er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja, strandhéraða Noregs. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2020. Umsóknarfrestur er 2. mars 2020.
Hámarksstyrkur er 500.000 dkr. sem lengst er unnt að veita til 3ja ára og aðeins sem hluta af heildarfjármögnun verkefnis, gegn mótframlagi viðkomandi aðila. Umsóknir skula fela í sér samstarf á milli a.m.k. tveggja NORA-landa. Í umsóknunum skal taka mið af samstarfsáætlun NORA 2017-2020. Þau svið sem helst eru styrkt eru eftirfarandi:
• Skapandi greinar: Með „skapandi greinum“ er átt við starfsemi sem sprettur úr sköpunargleði, þekkingu og hæfileikum fólks og sem eflir velferð og eykur atvinnutækifæri með því að skapa og nýta þekkingarauð.
• Græn orka: Þróa skal og innleiða grænar orkulausnir til sjós og lands.
• Lífhagkerfi: Nýsköpunarverkefni skulu stuðla að verðmætaaukningu með þróun vannýtts hráefnis, nýrrar verðmætasköpunar og sjálfbærrar matvælaframleiðslu.
• Sjálfbær ferðaþjónusta: Ferðaþjónustan á að leggja sitt af mörkum til að auka fjölbreytni í viðkvæmum hagkerfum á svæðinu um leið og sjálfbærni innan greinarinnar eykst.
• Upplýsinga- og fjarskiptatækni: Upplýsinga- og fjarskiptatækni er mikilvægur liður í að sigrast á fjarlægðum.
• Velferðarþjónusta: Samstarf á svæðinu, sem miðar að því að takast á við þær áskoranir sem miklar vegalengdir og skortur á markfjölda fagfólks og sjúklinga/skjólstæðinga skapa, skiptir sköpum fyrir framtíð svæðisins.
• Öryggismál/viðbúnaður á hafi: Vaxandi skipaumferð á Norður-Atlantssvæðinu og Norðurheimskautssvæðinu fylgja nýjar og flóknar áskoranir.
Markmið áætlunarinnar 2017-2020 er að stuðla með virkum hætti að því að gott verði að búa og vinna á Norður-Atlantssvæðinu og Norðurheimskautssvæðinu. Markmið fyrir þau tvö svið sem NORA leggur áherslu á eru eftirfarandi:
1. Að stuðla að auknum fjölbreytileika í efnahags- og atvinnulífi á svæðinu með skapandi lausnum.
2. Að stuðla að sjálfbærri þróun samfélaga á Norður-Atlantssvæðinu.
Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja ungt fólk á Norður-Atlantssvæðinu. Með því er ætlað að takast á við hinar lýðfræðilegu áskoranir, einkum þær sem tengjast brottflutningi ungs fólks af svæðinu.
Umsóknareyðublaðið og meiri upplýsingar má finna á heimasíðu
NORA, www.nora.fo og skilist í tölvutæku formi til:
NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE
noraprojekt@nora.fo
Sjá heimasíðu NORA, www.nora.fo fyrir frekari upplýsinga. Einnig má leita upplýsinga og ráðgjafar hjá tengilið NORA á Íslandi: Evu Pandoru Baldursdóttur, evapandora@byggdastofnun.is
Á heimasíðu NORA má finna nánari leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar undir flipanum „PROJEKTSTØTTE“.
Einnig er umsækjendum velkomið að hafa samband við tengilið NORA á Íslandi.
Þegar umsókn er metin mun nefndin hafa eftirfarandi þætti sérstaklega í huga:
• Tengingu verkefnisins við samstarfsáætlun NORA og þátttöku ungs fólks
• Möguleika verkefnisins til árangurs
• Hvort að verkefnið sé endurtekið eða mjög líkt öðru verkefni
• Samsetning samstarfsaðila
• Raunhæfi viðskiptaáætlunar
Umsækjendur skulu hafa í huga að aðeins er tekið við umsóknum sem uppfylla eftirfarandi kröfur:
• Samstarfsaðilar skulu vera frá a.m.k. tveim NORA löndum. Samstarfsaðilar frá öðrum nágrannalöndum eru einnig leyfilegir en teljast ekki með til þess að uppfylla skilyrði um a.m.k tvö NORA-lönd. Að auki skal eignarhald og aðkoma samstarfsaðila að verkefni vera jafnt.
• Hámarksstyrkur er 50% af heildarfjármögnun verkefnisins, en þó aldrei hærri en 500.000 dkr. á ári og 1.500.000 dkr. á þriggja ára tímabili.
• Ef boðið er upp á að senda nýja umsókn þarf að laga hana að þeim ábendingum sem gefnar eru.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember