Fara í efni  

Fréttir

Byggðastofnun eykur fjárframlög til Brothættra byggða verulega

Frá íbúaþingi í Dalabyggð

Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum þann 26. september sl. að veita 135 m.kr. viðbótarfjárframlagi inn í verkefnið Brothættar byggðir til að auka viðspyrnu í byggðarlögum sem eru í vörn. Framlagið skiptist á þrjú ár, 2025-2027.

Viðbótin verður nýtt til þess að fjölga þátttökubyggðarlögum, lengja gildistíma nýrra samninga og auka þannig stuðning við frumkvæðisverkefni.  Þá verður nú tveimur fyrrum þátttökubyggðarlögum, sem áfram eru í varnarbaráttu, boðið til samstarfs í tilrauna-/átaksverkefni til að fylgja eftir árangri í þeim byggðarlögum.

Verkefnið hófst á árinu 2012 og hefur verið í gangi í rúman áratug.  Undanfarið ár hefur verkefnið verið til skoðunar hjá stofnuninni og m.a. var samið við KPMG um að meta áhrif og verklag verkefnisins og möguleg sóknarfæri.  Töluverð eftirspurn er eftir þátttöku  verkefninu og það hefur víða stuðlað að jákvæðum byggðaáhrifum.

Á næstu vikum verður unnið að nánari útfærslu verkefna í samstarfi við hlutaðeigandi aðila.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389