Fara í efni  

Fréttir

Reykhólahreppur nýtt þátttökubyggðarlag í Brothættum byggðum

Reykhólar séð frá Skarðsströnd

Reykhólahreppur hefur nú hafið þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Í gær var undirritaður samningur þess efnis á milli Byggðastofnunar, Reykhólahrepps og Vestfjarðastofu. Byggðarlagið er það fimmtánda í röðinni sem hefur þátttöku í verkefninu frá því að það hóf göngu sína á Raufarhöfn árið 2012. Nú fer í hönd undirbúningsvinna að þátttöku samfélagsins og samstarfsaðila í verkefninu þ.m.t. myndun verkefnisstjórnar, stöðugreining, könnun meðal íbúa og undirbúningur íbúaþings. Gert er ráð fyrir að íbúaþing verði haldið fljótlega á nýju ári. Þar mun íbúum gefast mikilvægt tækifæri til að ræða hagsmunamál byggðarlagsins og móta áherslur í verkefninu.

Samningur til fimm ára

Sú nýjung er að samningur um verkefnið er gerður til fimm ára í stað fjögurra líkt og áður hefur verið gert í þátttökubyggðarlögum Brothættra byggða. Því er gert ráð fyrir að verkefnið vari til ársloka 2029. Með lengingu framkvæmdatímabils standa vonir til að hægt verði að ná auknum árangri og skjóta styrkari stoðum undir atvinnulíf, mannlíf og búsetu í Reykhólahreppi.

Íbúar hvattir til virkrar þátttöku

Vonir standa til að íbúar Reykhólahrepps taki virkan þátt í verkefninu og er það tilhlökkunarefni að hefja verkefnið með þeim af fullum krafti. Margt spennandi er að gerast í sveitarfélaginu en með verkefninu Brothættum byggðum gefst íbúum tækifæri til að stuðla að enn frekari grósku í samfélaginu.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389