Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - mat á framkvæmd

Aflamark Byggðastofnunar - mat á framkvæmd

Aflamark Byggðastofnunar er eitt af þeim úrræðum sem stjórnvöld hafa gripið til í því augnamiði að styðja byggðir sem eiga í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Vifill Karlsson hefur tekið saman skýrslu um árangur af verkefninu það sem af er og eru niðurstöður almennt jákvæðar.
Lesa meira
Eldiskvíar Fiskeldis Austfjarða í Berufirði

Samningur um aflamark Byggðastofnunar á Djúpavogi

Byggðastofnun, Búlandstindur og Fiskeldi Austfjarða hafa gert með sér samkomulag um aukna byggðafestu á Djúpavogi. Samkomulagið felur í sér samstarf um nýtingu á 400 þorskígildistonna aflaheimildum af Aflamarki Byggðastofnunar auk mótframlags samstarfsaðila í eldis- og bolfiski. Samkomulagið er til 3 ára, með möguleika á framlengingu um 1 ár.
Lesa meira
Fréttatilkynning um málefni Flateyrar og Þingeyrar

Fréttatilkynning um málefni Flateyrar og Þingeyrar

Vegna fréttaflutnings um málefni Flateyrar og Þingeyrar og aflamark Byggðastofnar vill stofnunin taka fram að málið er í þeim farvegi sem lög um stjórn fiskveiða og reglugerð nr. 647/2014 kveða á um. Rétt er að árétta að Byggðastofnun „úthlutar“ ekki byggðakvóta, heldur auglýsir í opnu og gegnsæju ferli eftir samstarfsaðilum um eflingu viðkomandi byggðar og nýtingu þess aflamarks sem stofnunin hefur til ráðstöfunar í byggðarlaginu. Hafa ber í huga að þær aflaheimildir sem Byggðastofnun ræður yfir til þessara verkefna eru takmarkaðar og geta ekki einar og sér myndað grundvöll atvinnulífs á viðkomandi stöðum. Því skipta mótframlög og nýting þeirra til atvinnusköpunar höfuðmáli.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf á Þingeyri

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf á Þingeyri

Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis XIII í lögum nr.116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Þingeyri í Ísafjarðarbæ, allt að 400 þorskígildistonnum.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf á Flateyri

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf á Flateyri

Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis XIII í lögum nr.116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Flateyri í Ísafjarðarbæ, allt að 300 þorskígildistonnum.
Lesa meira
Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf

Með breytingu á lögum nr. 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka aflaheimildir Byggðastofnunar um 1100 þorskígildistonn og tekur breytingin gildi á næsta fiskveiðiári (2014/2015). Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.
Lesa meira
Viðbótaraflamark á Bakkafirði

Viðbótaraflamark á Bakkafirði

Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389