Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - umsýsla stofnunarinnar góð að mati Ríkisendurskoðunar

Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á ráðstöfun byggðakvóta sem nú er komin út kemur fram að Aflamark Byggðastofnunar sé minna umdeilt en almenni byggðakvótinn og úthlutun þess feli í sér meiri fyrirsjáanleika hvað varðar úthlutun til byggðarlaga.

Úttektin var gerð að beiðni Alþingis sem samþykkti í maí 2023 að óska eftir því við Ríkisendurskoðanda að hann gerði stjórnsýsluúttekt á ráðstöfun almenns byggðakvóta og sértæks byggðakvóta þ.e. Aflamarks Byggðastofnunar. Í skýrslubeiðni Alþingis segir einnig: „Jafnframt verði athugað hvort framkvæmdin stuðli að jákvæðri byggðaþróun, hvort framkvæmdin samrýmist góðum stjórnsýsluháttum, hvort jafnræðis sé gætt við úthlutun byggðakvóta og hvort framkvæmdin samrýmist þeim markmiðum sem stefnt var að með setningu þeirra lagaákvæða sem úthlutun byggðakvóta byggir á.“

Ábending Ríkisendurskoðunar

Í niðurstöðukafla skýrslunnar kemur fram að Aflamark Byggðastofnunar sé minna umdeilt en almenni byggðakvótinn og úthlutun þess feli í sér meiri fyrirsjáanleika hvað varðar úthlutun til byggðarlaga og ætlaða þýðingu fyrir byggðafestu. Þá metur Ríkisendurskoðun umsýslu Byggðastofnunar góða hvað varðar jafnræði og stjórnsýslu.

Í úttektarskýrslunni er ábending til Byggðastofnunar og Fiskistofu um að verklagsreglur um byggðakvóta þurfi að endurspegla framkvæmd úthlutunar og eftirlit með nánari hætti. Byggðastofnun hefur þegar brugðist við þessari ábendingu og uppfært verklagsreglur stofnunarinnar í samræmi við framkomnar ábendingar þannig að þær endurspegli ítarlegar framkvæmd úthlutunar og eftirlits stofnunarinnar varðandi Aflamark Byggðastofnunar og voru þær samþykktar af stjórn stofnunarinnar þann 6. júní sl. Jafnframt því mun stofnunin fela innri endurskoðun að yfirfara verkferla og stjórnsýslu vegna Aflamarks Byggðastofnunar í sinni reglubundnu úttekt á starfsemi stofnunarinnar.  Byggðastofnun tekur fram að ráðstöfun stofnunarinnar á sértækum byggðakvóta hefur ávallt verið í samræmi við lög, reglugerð og gildandi verklagsreglur eins og m.a. þeir stjórnsýsluúrskurðir og dómar sem fallið hafa vegna verkefnisins bera með sér.  

Í beiðni Alþingis var spurt hvort framsetning ársreikninga Byggðastofnunar stæðist með tilliti til sértæks byggðakvóta. Byggðastofnun aflaði álits KPMG um þetta atriði og var mat þeirra afdráttarlaust um að rétt sé að geta um umsýslu kvótans í skýringum ársreiknings en að hann beri ekki að færa í rekstrar- eða efnahagsreikning stofnunarinnar. Mat Ríkisendurskoðunar er að Byggðastofnun beri að geta í skýringum með ársreikningi um magn og verðmæti þess aflamarks sem stofnunin úthlutar hverju sinni og er þeim tilmælum beint til Byggðastofnunar að gera úrbætur á framsetningu ársreikninga hvað þetta varðar.  Það mun stofnunin gera en rétt er að geta þess að magnið var tiltekið í skýringum með ársreikningi stofnunarinnar fyrir árið 2023 án þess að lagt hafi verið mat á verðmæti þess.

Þróun byggðakvótakerfisins og aukið vægi Byggðastofnunar

Vert er að benda á það sem segir í niðurstöðukafla úttektarskýrslunnar: „Ástæða er til að gaumgæfa þann mun sem hefur orðið á þróun almenna og sértæka kerfisins miðað við þann tilgang sem þeim er ætlaður í lögum og þar hefur almenna kerfið raunar dagað uppi með nánast algerri stöðnun. Nokkuð öðru máli gegnir um sértæka kerfið, markmiðin eru sértækari, úthlutun byggist á sérstöku mati, deilist á færri hendur og árangur er háður reglubundnu mati.

Ítarleg rök hníga að því að ástæða sé til að endurskoða samspil kerfanna, skera byggða-kvótakerfið alveg upp og sameina almenna hlutann þeim sértæka. Jafnframt verði hlutverkaskipan um úthlutun endurskoðuð og dregið úr því að ráðuneyti komi að starfrækslu úthlutunarkerfis og því þess í stað beint í auknum mæli að Byggðastofnun, og eftir atvikum Fiskistofu, með tæknilega útfærslu.“

Tengill á skýrslu Ríkisendurskoðunar


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389