Ársfundur 2010
Ársfundur Byggðastofnunar 2010 var haldinn í Miðgarði, Skagafirði 11. júní 2010. Á fundinum hélt Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarp, auk Önnu Kristínar Gunnarsdóttur stjórnarformanns Byggðastofnunar og Aðalsteins Þorsteinssonar forstjóra.
Að loknum ræðum þeirra var haldin ráðstefna undir yfirskriftinni ,,Byggðastefna, alþjóðavæðing og samkeppnishæfni" Erindin héldu Friðrik Eysteinsson aðjúnkt við Háskóla Íslands, Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaðuar Þróunarsviðs Byggðastofnunar og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, deildarstjóri í Utanríkisráðuneytinu. Fundarstjóri var Anna Kristín Gunnarsdóttir.
Að loknum erindum svöruðu fyrirlesara spurningum úr sal. Rúmlega 70 manns mættu á fundinn.
Erindi og kynningar má nálgast hér að neðan
Ársskýrsla Byggðastofnunar 2009
Anna Kristín Gunnarsdóttir, ræða formanns stjórnar Byggðastofnunar
Aðalsteinn Þorsteinsson, skýrsla forstjóra Byggðastofnunar (glærukynning)
Byggðastefna, alþjóðavæðing og samkeppnishæfni
Samkeppnishæfni þjóða, Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt við Háskóla Íslands
Framkvæmd byggðastefnu ESB, Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar (glærukynning)