Ársfundur 2011
Ársfundur Byggðastofnunar 2011 var haldinn á Kaffi Krók, Sauðárkróki 22. ágúst 2011. Á fundinum hélt Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarp, auk Önnu Kristínar Gunnarsdóttur stjórnarformanns Byggðastofnunar og Aðalsteins Þorsteinssonar forstjóra.
Að loknum ræðum þeirra var afhentur Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar sem féll í skaut Jóns Jónssonar á Ströndum. Þá fjallaði Gunnar Svavarsson formaður nefndar um framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi Byggðastofnunar erindi um niðurstöður nefndarinn. Að lokum héldu Sigríður Þorgrímsdóttir og Árni Ragnarsson, sérfræðingar á þróunarsviði, erindi um verkefmið sem eru í vinnslu á þróunarsviði Byggðastofnunar. Fundarstjóri var Anna Kristín Gunnarsdóttir.
Erindi og kynningar má nálgast hér að neðan
Ársskýrsla Byggðastofnunar 2010
Anna Kristín Gunnarsdóttir, ræða formanns stjórnar Byggðastofnunar
Aðalsteinn Þorsteinsson, skýrsla forstjóra Byggðastofnunar
Framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi Byggðastofnunar, Gunnar Svavarsson kynnir skýrslu nefndar
Sýnishorn verkefna í vinnslu á þróunarsviði
- Byggðarlög sem glíma við fólksfækkun - Sigríður Þorgrímsdóttir
- Sóknaráætlanir landshluta, setning matskvarða - Árni Ragnarsson