Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fréttir

Áhrif háskóla og menntunar á byggðaþróun

Iðnaðarráðuneytið, Nordregio (Norræna fræðastofnunin í skipulags- og byggðamálum) og Byggðastofnun í samstarfi við Norrænu embættisnefndina efna til ráðstefnu um áhrif háskóla og menntunar á byggðaþróun á Norðurlöndunum.


Á ráðstefnunni verður greint  frá nýrri rannsókn Nordregio um hlutverk og áhrif svæðisháskóla á nærumhverfið og þróun byggðar.

Lykilspurningar ráðstefnunnar eru:

  • Hvaða aðstæður þurfa vera til staðar í nærsamfélaginu til þess að svæðisháskóli sé aflvaki efnahags- og félagslegra framfara?
  • Hvert er framtíðarhlutverk og skipulag svæðisháskóla?

Fyrirlesarar:

Sigrid Hedin, doktor hjá Nordregio

Eija-Riitta Niinikoski, framkvæmdastjóri, Oulu Southern Institute Regional Unit við Háskólann Oulu í Finnlandi

Peter Arbo, prófessor við Norwegian College of Fisheries Science við Háskólann í Tromso í Noregi

Stefanía Steinsdóttir, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar

Steingerður Hreinsdóttir, formaður stjórnar Háskólafélagsins á Suðurlandi

Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða

Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnun Fræðasetra Háskóla Íslands

Stjórnandi pallborðs: Ole Damsgaard, forstjóri Nordregio

Ráðstefnustjóri: Sveinn Þorgrímsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu.

Tungumál ráðstefnunnar er enska.

Smellið hér til að nálgast ítarlegri dagskrá

Smellið hér til að skrá þátttöku á ráðstefnunni.  Skráningu lýkur 19. júní nk.

     



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning