Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Innlent samstarf

Byggðamál eru víðtæk og samstarf er lykilorð. Byggðastofnun hefur leitað eftir samstarfi og beitt sér fyrir samstarfi annarra, formlegu og óformlegu, s.s. ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, mennta- og rannsóknarstofnana og félaga. Samstarfið hefur verið með ýmsum hætti, bein samstarfsverkefni, gagnkvæm upplýsinga- og ráðgjöf, fjárstuðningur og aðild að áætlanagerð, ráðstefnum og fundum.

Byggðastofnun starfar náið með átta atvinnuþróunarfélögum á landinu á grundvelli samninga við þau og hefur gert samninga við stofnanir í stoðkerfi atvinnuveganna um samstarf við Byggðastofnun og atvinnuþróunarfélögin. Tilgangur þessara samninga er aukin skilvirkni stofnana á landsbyggðinni og bætt skilyrði atvinnuþróunarfélaga til að sinna verkefnum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, nýsköpunar og ráðgjafar.

Flest Vesturlanda leggja áherslu á byggðaþróun og verja til hennar miklum fjármunum. Þessar fjárveitingar þurfa að vera í samræmi við reglur og samninga sem gilda í samstarfi þessara landa og samstarf á sviði byggðamála er alþjóðlegt, um rannsóknir, reglur og samninga um byggðaþróun.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning