
Meginmarkmið Norðurslóðaáætlunar 2007 – 2013 er að efla atvinnu- efnahags- og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Norðurslóðaáætlun er 1 af 5 svæðaáætlunum Evrópusambandsins sem tilheyra INTERREG IV og sú eina sem Ísland tekur þátt í (nánari upplýsingar um INTERREG IV A og B áætlanirnar er að finna hér).
Ísland var afar virkur þátttakandi á fyrra áætlunartímabili en í lok starfstíma hennar voru Íslendingar þátttakendur í 28 aðalverkefnum hér. Í núgildandi áætlun 2007-2013 hafa verið samþykkt 14 verkefni með íslenskri þátttöku og má sjá yfirlit yfir þau hér.
Í Byggðaáætlun 2006 – 2009 var lagt til að Ísland verði áfram þátttakandi í nýrri Norðurslóðaáætlun tímabilið 2007 – 2013. Árlegt framlag Íslands til þátttöku í áætluninni eru um 400.000 € og er íslensk þátttaka styrkt af því fjármagni. Framlag Íslands til aðalverkefna er að hámarki 50% af heildarkostnaði.
Þátttökulönd og starfsvæði áætlunarinnar má sjá á meðfylgjandi korti en nákvæmari skilgreiningu svæða er að finna hér
Landsskrifstofur (Regional Contact Point) eru í hverju þátttökulandi og er þeim ætlað að aðstoða við leit að samstarfsaðilum, annast kynningu áætlunarinnar og vera í nánu samstarfi við þátttakendur í verkefnum. Byggðastofnun gegnir hlutverki landsskrifstofu áætlunarinnar hér á landi. Ýmsir aðilar geta tekið þátt í NPP verkefnum svo sem sveitarfélög, félagasamtök, ríkisstofnanir, atvinnuþróunarfélög, fyrirtæki, háskólar og rannsóknarstofnanir. Þátttaka í einstökum verkefnum getur verið blönduð milli þessara aðila og sérstök áhersla er lögð á samstarf atvinnulífs, háskóla og rannsóknarstofnana. Í hverju verkefni þurfa að vera samstarfsaðilar frá a.m.k. þremur löndum, þar af verður eitt þeirra að vera aðildarríki Evrópusambandsins.
Áherslur áætlunarinnar eru eftirfarandi (úrdráttur):
Áhersla 1
Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni svæða
- Nýsköpun, samstarfsnet, samkeppnishæfni
- Bætt aðgengi
Áhersla 2
Sjálfbær þróun auðlinda náttúru og samfélags
- Umhverfi sem styrkleiki norðurslóða og samhengi nýtingar og vernda.
- Þróun samstarfs þéttbýlis og dreifbýlis og kynning arfleifðar.
Ítarlega lýsingu á áherslum áætlunarinnar er að finna í Operational Programme og almenna kynningu á áætluninni má nálgast hér. Jafnframt skal bent á heimsíðu áætlunarinnar á slóðinni http://www.northernperiphery.eu/en/home/ en þar er hægt að nálgast allar nauðsynlegar upplýsingar.
Algengast er að umsækjendur sæki um forverkefni til að móta verkefnishugmyndir, finna samstarfsaðila og ljúka mótfjármögnun.Almennt er heildarkostnaður við forverkefni að hámarki 30.000 € og framlag áætlunarinnar 60 % eða 18.000 €. Almennt standa forverkefni í 3 - 6 mánuði eða lengur eftir umfangi verkefna. Norðurslóðaáætlun hefur óskað sérstaklega eftir forverkefnum í ákveðnar áherslur áætlunarinnar og eru frekari upplýsingar að finna á slóðinni http://www.northernperiphery.eu/en/news/show/&tid=84
Hægt er að nálgast umsóknarform fyrir forverkefni og aðalumsóknir ásamt leiðbeiningum á slóðinni http://www.northernperiphery.eu/en/documents/Downloads/
Nú hefur verið auglýstur fimmti umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar með lokadagsetningu 24. mars 2010. Að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á verkefni er falla að markmiðum um
1. Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni á jaðarsvæðum
2. Sjálfbær þróun náttúruauðlinda og samfélags
Í ljósi þeirra efnahagslegu þrenginga sem þátttökulönd áætlunarinnar standa nú frammi fyrir er lögð sérstök áhersla á verkefni sem eru líkleg til að skapa ný störf til að takast á við vaxandi atvinnuleysi og þróa skapandi lausnir. Ákveðin tækifæri til sóknar felast í núverandi efnahagsástandi og lögð er áhersla á að þau séu nýtt. Með aukinni samvinnu hinna ýmsu greina má ná árangri og mætti nefna samstarf skapandi greina við hefðbundið atvinnulíf í því sambandi.
Þrátt fyrir ofangreindar megináherslur um verkefni þá hafa verið greind eftirfarandi verkefnasvið sem enn vantar verkefni.
- Þekkingaryfirfærsla og samstarfsnet rannsóknastofnana og fyrirtækja með að markmiði að auka getu til nýsköpunar, ná fram skilvirkara nýsköpunarkerfi og bætta samkeppnishæfni.
- Samstarfsverkefni þéttbýlis og dreifbýlis um þróun þjónustu.
Þessu til viðbótar má nefna eftirfarandi áherslur: samstarf fyrirtækja á sviði markaðssetningar, hagnýtingu tölvutækni til samskipta, nýjar þjónustur á sviði samgangna og menningarmála.
Opnað verður fyrir umsóknir í 6. umsóknarfrest 3. september 2010 og verða áherslur hans kynntar í júlí 2010.
Mikilvægt er að umsækjendur setji sig í samband við umsjónaraðila áætlunarinnar hér á landi áður en hafist er handa við vinnslu umsókna m.a. til að fá upplýsingar um fjárhagsramma áætlunarinnar. Næsti umsóknarfrestur aðalverkefna er í mars 2010.
Tengiliður áætlunarinnar er Þórarinn V. Sólmundarson, Byggðastofnun.
Netfang:thorarinn@byggdastofnun.is
Síðast uppfært 16.12.2009












