Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Nordregio


Nordregio er norræn fræðastofnun í skipulags- og byggðamálum sem starfar á vegum Norrænu raðherranefndarinnar. Stofnunin er staðsett í Stokkhólmi.

Hlutverk Nordregio er að stunda rannsóknir á sviði skipulags- og byggðamála auk þess að þróa og miðla þekkingu um byggða- og skipulagsmál til viðeigandi stofnana innan þessara málaflokka á Norðurlöndum. Áhersla stofnunarinnar á byggðamál í Evrópu, sem og í málum tengdum Eystrasaltsríkjunum, hefur farið vaxandi undanfarin ár.  Nordregio rekur sérstaka rannsóknaáætlun sem nálgast má hér.

Starfsmenn Byggðastofnunar sitja í fagráði stofnunarinnar og stýrihópi rannsóknaráætlunar stofnunarinnar. 

Stofnunin gefur út tímaritið „Journal of Nordregio" sem kemur út ársfjórðungslega og er það á ensku. Hægt er að nálgast ritið á vefsíðu Nordregio en krækja þangað er:http://www.nordregio.se/ . Þar er einnig hægt að nálgast rafræna fréttbréfið „Bifröst" og „Europan Journal of Spatial Development" sem er rafrænt tímarit um skipulagsmál og byggðaþróun.

Kynningar af ráðstefnunni "Áhrif háskóla á menntunar og byggðaþróun" sem var haldin 24. júní 2009 í Reykjavík

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning