NORA er skammstöfun sem stendur
fyrir Nordisk Atlantsamarbejde sem hefur verið þýtt sem Norræna Atlantsnefndin á íslensku. Nefndin heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og telst
þar vera hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamvinnu. Starfsvæði NORA er Ísland, Færeyjar, Grænland og
strandhéruð Noregs.
Skrifstofa nefndarinnar er í Færeyjum, en nefndin hefur landsskrifstofur í samstarfslöndunum. Byggðastofnun gegnir hlutverki landsskrifstofu NORA á Íslandi.
Markmið NORA er að efla samstarf innan starfsvæðis NORA með því að styðja við atvinnu- og byggðaþróun.
NORA stuðlar að miðlun þekkingar og reynslu innan svæðisins með virku samstarfi og með það að markmiði að yfirvinna þær
hindranir sem felast í miklum fjarlægðum og strjálbýli.
NORA veitir styrki til samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs, nýsköpun og rannsóknasamstarfi. Meirihluti af ráðstöfunarfé
nefndarinnar gengur til verkefna þar sem sótt er um styrki. Nefndin veitir einnig fé til verkefna sem skrifstofa og stjórn nefndarinnar hefur frumkvæði að og
leiðir saman aðila á starfsvæðinu til samstarfs.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki ein sér eða í samstarfi við rannsóknar- og þróunarstofnanir og opinberar stofnanir. Styrkir eru veittir til að koma á tengslanetum, til rannsóknatengdra forverkefna og aðalverkefna t.d. innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP). Umsóknir sem fela í sér samstarf við fyrirtæki og stofnanir í Norður-Skotlandi og á austurströnd Kanada eru eftirsóknarverðar. Mestu skiptir að um vel skilgreind og afmörkuð verkefni sé að ræða sem samrýmast markmiðum NORA.
NORA auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki til samstarfsverkefna á milli Íslands og hinna NORA landanna. Veittir eru styrkir til verkefna sem
stuðla að auknu samstarfi í atvinnulífi á milli landanna á eftirtöldum sviðum:
Auðlindir sjávar
Verkefni sem stuðla á sjálfbæran hátt að
- fullnýtingu þekktra auðlinda, aukaafurða, nýrra auðlinda, eldi og sjávarvöruframleiðslu til manneldis og tengdra greina,
- þróun framleiðsluaðferða og búnaðar.
Ferðamál
Verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu í löndunum.
Upplýsingatækni
Verkefni sem stuðla að:
-hagnýtingu upplýsingatækni á svæðinu
-þróun hugbúnaðarlausna til eflingar atvinnulífs
Annað samstarf
Verkefni sem efla fámenn byggðarlög í löndunum.
Við mat á umsóknum til NORA er lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
Samstarf
Verkefnið verður að fela í sér samstarf a.m.k. tveggja NORA-landa eða hafa ótvírætt gildi fyrir
a.m.k. tvö lönd.
Atvinnuþróun
Verkefni þar sem fyritæki eða stofnanir tengdar atvinnuþróun eru þátttakendur og fela í sér þróun á samstarfi eða
tengslaneti meðal fyrirtækja eru sett í forgang.
Góður undirbúningur
Hægt er að sækja um styrk í forverkefni eða tilraunaverkefni
Nýsköpun
Verkefni þurfa að hafa nýsköpunargildi og stuðla að miðlun þekkingar milli
landa. Sérstök áhersla er lögð á að styðja við viðleitni til að miðla og hagnýta færni og þekkingu sem til er
innan svæðisins ef hún getur talist sértæk fyrir samstarfsvæðið á einhvern hátt.
Annað sem vert er að hafa í huga:
-
NORA styrkir allt að 50% af heildarkostnaði verkefna
-
Styrkfjárhæðir geta numið frá 50.000 til 500.000 DKR á ári
-
Yfir hverju verkefni skal vera verkefnisstjórn og getur NORA tilnefnt áheyrnarfulltrúa í hana
-
Niðurstöður verkefna eru opinberar
-
Styrkloforð eru veitt til eins árs í senn, en mögulegt er að sækja um framhaldsstyrki
-
NORA styrkir lengst til 3ja ára
Umsóknin
Eyðublöð fyrir umsóknir má finna á heimasíðu NORA. Umsókn verður að innihalda eftirfarandi:
-
Greinargóða verkefnislýsingu
-
Allir þátttakendur í verkefninu skulu tilgreindir og gerð grein fyrir fyrirhuguðum þætti hvers og eins í verkefninu
-
Upplýsingar um markmið verkefnis, væntingar um niðurstöður og framtíðaráætlanir
-
Verkáætlun
-
Upplýsingar um fjármögnun og kostnaðaráætlun
Umsóknir sendist til:
Nordisk Atlantssamarbejde; NORA Bryggjubakki 12 P.O. Box 259 FO-110 Tórshavn
Tengiliður NORA á Íslandi er Sigríður K. Þorgrímsdóttir.
Sími: 455-5400 Netfang: sigga@byggdastofnun.is/
Heimasíða NORA: http://www.nora.fo/










