Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

ESPON

ESPON (European Spatial Planning Observation Network) er ein af svæða- eða byggðatengdu aðgerðaáætlunum Evrópusambandsins, fjármögnuð að 75% hluta af Byggðaþróunarsjóði ESB undir 3. áherslusviði hans, Evrópskt svæðasamstarf, og öllum 27 aðildarlöndum og 4 samstarfslöndum, Sviss, Noregi, Liechtenstein og Íslandi. Ísland varð aðili að ESPON á öðru starfstímabili áætlunarinnar, frá 2007-2013. Skrifstofa áætlunarinnar í Luxemburg er ekki stór en styrkir hennar hafa leitt af sér umfangsmikið samstarfsnet um byggðarannsóknir háskóla og rannsóknastofnana um alla Evrópu. Fyrsta starfstímabilið, frá 2002 til 2006, öfluðu á annað hundrað evrópskra háskóla og rannsóknastofnana mikillar þekkingar og miðluðu henni í skýrslum og kortum sem einfalt er að nálgast á heimasíðu ESPON.

Einkenni rannsóknaverkefna á vegum ESPON er samanburður milli svæða, víðtæk framsetning upplýsinga á kortum og síðan hinar miklu kröfur um fagleg vinnubrögð. Rannsóknastyrkir hafa aðallega verið veittir fjölþjóðlegum rannsóknateymum háskóla og annarra rannsóknastofnana á sviði byggðaþróunar. ESPON-rannsóknir hafa þegar haft áhrif á stefnumótun ESB í byggðamálum og svo mun áreiðanlega verða í næstu framtíð.

Breytingar hafa orðið á ESPON frá fyrra tímabilinu. Ein breytingin kemur fram í undirheiti áætlunarinnar sem nú er European Observation Network on Territorial Development and Cohesion eða Evrópska netverkið fyrir rannsóknir á svæða- eða byggðaþróun og aðlögun. Í nafnbreytingunni birtist viðurkenning á því að gagnlegra sé að rannsaka byggðaáhrif af áætlunum og stefnumiðum sem stjórnvöld setja fremur en áætlanirnar sjálfar. Breytingar hafa líka orðið á áherslum frá fyrsta starfstímabili ESPON. Á tímabilinu 2007-2013 verða fimm megináherslur fyrir aðgerðir og rannsóknir sem taldar eru upp hér á eftir og hlutfall hverrar áherslu af útgjöldum ESPON sýnt innan sviga en ESPON hefur € 47 milljónir til ráðstöfunar á starfstímabilinu 2007-2013:

  1. Hagnýtar rannsóknir á byggðaþróun, samkeppnishæfni og aðlögun (42,4%).
  2. Verkefnamiðaðar rannsóknir á grundvelli óska notenda (14,4%).
  3. Vísindalegur grundvöllur ESPONVísindavettvangar og –áhöld (13,5%).
  4. Fjármögnun, eignarhald og þátttaka (12,2%).
  5. Tæknileg aðstoð, greiningarstuðningur og samskipti (17,5%).

Auglýst er eftir styrkumsóknum undir þremur fyrstu áherslunum en hinar eru starfsáherslur. Undir 2. áherslunni eru átta skilgreind rannsóknasvið fyrir styrkhæf verkefni.

Byggðastofnun hefur fylgst með starfi ESPON og haft umsjón með því í umboði iðnaðarráðuneytisins. Starfsmenn Byggðastofnunar hafa setið fundi stjórnarnefndar ESPON og í mars 2009 gerði stofnunin samning við Háskólann á Akureyri um að hann, Grétar Þór Eyþórsson á hans vegum, gegni hlutverki starfstengiliðs ESPON á Íslandi, tengi íslenska og evrópska háskóla og rannsóknastofnanir á sviði byggðarannsókna og þessar stofnanir og ESPON.

Mikilvægi ESPON-starfsins felst í því

  • að fylgjast með rannsókna- og stefnumótunarvinnu á sviði byggðamála í Evrópusambandinu,
  • á öflugri þátttöku íslenskra háskóla í hinum fjölþjóðlegu byggðarannsóknum sem styrktar eru og
  • á áhrifum af því starfi á umræðu og stefnumótun í byggðamálum á Íslandi.

Stutt og gott yfirlit yfir starf ESPON áætlunarinnar má finna hér og á heimasíðu áætlunarinnar.

Heimasíða ESPON

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning