Sala innleystra eigna
Allar eignir sem Byggðastofnun innleysir vegna uppboðs eða
gjaldþrots ber að auglýsa til sölu á almennum markaði. Að jafnaði leitast stofnunin við að selja slíkar eignir svo fljótt sem unnt er.
Eignir skulu auglýstar a.m.k. á heimasíðu stofnunarinnar og fasteignir einu sinni í fjölmiðli á landsvísu. Öllum spurningum
varðandi eignir sem stofnunin hefur auglýst til sölu skal beint til lögfræðisviðs í síma 455-5400. Hér má sjá fasteignir sem eru til sölu.
Almennir söluskilmálar
Samkvæmt almennum söluskilmálum er þess
krafist að greitt sé að lágmarki 10% kaupverðs við undirskrift, önnur 20% á árinu, en afgangur lánaður til allt að 15 ára
verðtryggt með breytilegum vöxtum, nú 7,0% gegn 1. veðrétti í hinni seldu eign. Lánanefnd hefur heimild til að ákvarða um sölu eigna
þar sem söluverð er undir 20 m.kr. í samræmi við almenna söluskilmála, en annars þarf stjórn að samþykkja sölu.
Sala hlutabréfa
Við sölu á hlutabréfum í eigu stofnunarinnar miðast viðskipti við staðgreiðslu. Öllum spuringum varðandi hlutabréf sem
stofnunin á skal beint til Péturs Grétarssonar, Lánasérfræðings á Fyrirtækjasviði
Byggðastofnunar. Hér má sjá lista yfir hlutabréf Byggðastofnunar sem eru til
sölu.










