Iðnaðarráðherra hefur falið Byggðastofnun að vinna byggðaáætlun fyrir árin 2010 til 2013.
Á þessari síðu verður hægt að kynna sér gögn sem verða til við gerð áætlunarinnar, upplýsingar og úrvinnsla, dagskrár málþinga, myndir, erindi og niðurstöður, aðsendar greinar og annað efni sem tengist gerð byggðaáætlunar 2010-2013. Slíkar greinar eða tillögur um áherslur og markmið byggðaáætlunar til birtingar á heimasíðunni má senda á netfang Byggðastofnunar byggdastofnun@byggdastofnun.is
Byggðaþróun – Ástand og horfur
Við undirbúning þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra um stefnumótandi byggðaáætlun 2010-2013 tók Byggðastofnun
saman efni um ástand og horfur í byggðaþróun. Þingsályktunartillagan er enn í mótun en fylgiritið Byggðaþróun –
Ástand og horfur má nálgast hér.
Drög að Byggðaáætlun 2010-2013
Áætlunin er í vinnslu og drög að aðgerðartillögum hennar hafa verið lögð til kynningar hér á vefsíðuna og má nálgast hana hér Athugasemdum, ábendingum og nýjum tillögum má koma á framfæri við Byggðastofnun til mánaðarmóta mars og apríl á netfangið byggdastofnun@byggdastofnun.is
Byggðaáætlun 2010-2013
Grein Snorra Björn Sigurðssonar forstöðumanns Þróunarsviðs Byggðastofnunar í Fréttablaðinu 5. janúar 2009.
Byggðaþróun við breyttar aðstæður
Í upphafi gerðar byggðaáætlunar gekkst Byggðastofnun fyrir málþingi um það undir heitinu Byggðaþróun við breyttar aðstæður. Málþingið fór fram föstudaginn 28. nóvember í Reykjavík og bauð Byggðastofnun til þess fulltrúum allra ráðuneyta, atvinnuþróunarfélaga, samtaka sveitarfélaga og fjölda stofnana sem Byggðastofnun telur áríðandi að hafa samráð við um áætlunina. Hér má skoða gögn málþingsins.










