Innlendir sjóðir
Atvinnuleysistryggingasjóður styrkir sérstök verkefni undir eftirliti svæðisvinnumiðlana.
Atvinnumál kvenna veitir styrki til verkefna sem auka fjölbreytni í atvinnulífi og einkum til verkefna sem eru á vegum hópa eða félagasamtaka.
Ferðamálastofa veitir styrki til nýsköpunar og nýjunga sem tengjast umhverfismálum á
ferðamannastöðum.
-Gimli, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík, Sími 535 5500, Fax 535 5501
-Strandgötu 29, 600 Akureyri, Sími 464 9990, Fax 464 9991
Framleiðnisjóður landbúnaðarins veitir styrki til nýsköpunar og atvinnueflingar í dreifbýli.
Lánatryggingasjóður kvenna - Meginmarkmið sjóðsins er að
styðja konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming lána sem þær taka
hjá lánastofnun til að fjármagna tiltekið verkefni.
-Félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, Sími 560-9100, Fax 552-4804
-Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur, Sími 455-5400, Fax 455-5499
Nýsköpunarsjóður - Hlutverk sjóðsins er að vinna að uppbyggingu, vexti og alþjóðavæðingu íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingaverkefnum á sviði nýsköpunar, og að styrkja forathuganir, þróunarverkefni og kynningarverkefni.
Rannsóknarráð Íslands - Hlutverk þess er að treysta stoðir íslenskrar menningar og atvinnulífs með því að stuðla að markvissu vísindastarfi, tækniþróun og nýsköpun.
Norrænir sjóðir
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda veitir lán og styrki til framfaraverkefna hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og er sérstök áhersla lögð á þróun framleiðslu til útflutnings eða bætta þjónustu og nýsköpun. Hlutverk sjóðsins er að efla fjölbreytt og samkeppnifært atvinnulíf í Færeyjum, á Grænlandi og Íslandi.
Norræna Atlantsnefndin (NORA) veitir styrki til samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs, nýsköpun og rannsóknasamstarfi á Grænlandi, Íslandi , Færeyjum og strand-Noregi.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) tekur þátt í verkefnum með því að leggja fram fjármagn í formi hlutafjár eða lána til fyrirtækja. Megintilgangur félagsins er að stuðla að umhverfisbótum svo sem bættum mengunarvörnum í löndum Mið- og Austur-Evrópu.
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) veitir lán til fjárfestingarverkefna einkaaðila og opinberra aðila á Norðurlöndum sem og utan þeirra.
Nordisk Innovations Center - Hlutverk sjóðsins er að hvetja til norrænar samvinnu um tækniþróun og nýsköpun í atvinnulífi Norðurlanda og aðstoðar við myndun evrópskra samstarfsverkefna á grundvelli norrænnar samvinnu.
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF). Hlutverk sjóðsins er að styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir í þróunarríkjum.











