NORA styrkir samstarfsverkefni, seinni úthlutun 2009
Á stjórnarfundi Norræna Atlantssamstarfsins, NORA um miðjan desember var ákveðið að veita
verkefnastyrki til 14 verkefna að upphæð 53,5 milljónir íslenskra króna (rúmar 2,1 milljón danskra króna) og er það síðari
styrkjaúthlutun árið 2009. Næsti umsóknarfrestur þessa árs verður í byrjun mars n.k., eins og verður auglýst í blöðum
og á heimasíðu Byggðastofnunar er nær dregur.
Að þessu sinni bárust 32 umsóknir, að meirihluta með íslenskri aðild og var samþykkt að styrkja 14 verkefni. Af þeim voru 11 með
íslenskri þátttöku. Alls bárust því 73 umsóknir á árinu 2009 og voru 29 samþykktar, þar af 23 með íslenskri
aðild. Hægt er að sækja um styrki á eftirfarandi sviðum; auðlindum sjávar, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, samgöngum og
flutningum og öðru svæðasamstarfi. Eins og oftast bárust flestar umsóknir á sviði auðlinda sjávar, en flokkurinn annað
svæðasamstarf fer þó stækkandi.
Með styrkveitingunum vill NORA leggja sitt af mörkum til þróunar samstarfs í atvinnulífi á Norður-Atlantssvæðinu. Það er gert með því að styrkja þróunarverkefni, efla samstarf og þekkingaryfirfærslu innan ferðaþjónustu, auðlinda sjávar, samgangna, þróunar atvinnulífs og samfélags.
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu NORA, http://www.nora.fo/
Verkefni með íslenskri þátttöku:
- Kortlagning á ferðum lúðu, Stjörnu-Oddi
- Urriði, rannsókn í fiskeldi, Hólaskóli, Íslandsbleikja og Matís
- Línuveiðar, Matís
- Selaafurðir, Bændasamtök Íslands
- Ráðstefna um uppsjávarfisk, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
- Ferðaþjónusta á norðurslóðum, Hólaskóli
- Heilbrigðismál í skálum á hálendinu, Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Flug og landbúnaður, Landgræðsla ríkisins
- Tilraun með rafbíla, Nýorka, Orkuveita Reykjavíkur o.fl.
- Samfélög og breytingar, Fjarðabyggð
- Búseturannsókn, Hólaskóli o.fl.











