Kynning á Evrópuáætlunum
þriðjudagur 19.janúar 2010 - Lestrar 43
Þann 14. janúar sl. stóðu umsjónarstofnanir samstarfsáætlana ESB, sem Ísland er aðili að, fyrir kynningu
á Háskólatorgi í Reykjavík. Kynntar voru um 20 áætlanir sem veita styrki til samstarfsverkefna á ýmsum sviðum samfélagsins.
Byggðastofnun kynnti tvær evrópskar áætlanir, Norðurslóðaáætlunina, NPP, og ESPON, áætlun um svæða- og byggðarannsóknir. Að auki kynnti Byggðastofnun NORA, vestnorræna samstarfið og fjárstuðning sem þangað má sækja. Tengla fyrir þessar áætlanir má finna hér á heimasíðu Byggðastofnunar.
Góð aðsókn var á kynninguna og greinilegt að mikill áhugi er fyrir þessum áætlunum og vöktu margar heimsóknir sprotafyrirtækja sérstaka athygli þeirra þriggja starfsmanna Byggðastofnunar sem kynntu ofannefndar áætlanir.
Á myndinni má sjá Sigríði Þorgrímsdóttur og Þórarinn Sólmundarson á kynningarsvæði Byggðastofnunar á Háskólatorginu.











