Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fréttir

Auðlind til framtíðar

Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands,  Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnunarvörum.


Heildarráðstöfunarfé er tíu milljónir króna, hámarksstyrkur er tvær milljónir króna, en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði.

Markmið: Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvöru.

Þátttökurétt hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði Byggðastofnunar.

Styrkjunum er ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna.

Auglýsing

Leiðbeiningar



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning