Byggðastofnun samþykkir tilboð í viðgerð verkstæðis á Þórshöfn
mánudagur 04.janúar 2010 - Lestrar 69
Alls bárust 4 tilboð í verkið allt auk þess sem eitt tilboð barst í afmarkaðan verkhluta. Öll tilboðin utan eitt voru frá
verktökum á Norðurlandi eystra og voru þau öll undir kostnaðaráætlun.
Með vísan til 1. mgr. 2. gr. laga nr. 106/1999 um Byggðastofnun og áskilnaðar í auglýsingu um útboð verksins hefur Byggðastofnun
ákveðið að ganga að tilboði Raftó ehf. Akureyri sem bauð í verkið í samvinnu við Trésmiðjuna Brú á
Þórshöfn. Fyrirtækin áttu næstlægsta boð í verkið en innan við 3% munur var á fjárhæðum tveggja
lægstu tilboðanna.
Áætlað er að framkvæmdir muni hefjast fljótlega eftir áramót og skal verkinu vera lokið 26. febrúar 2010.











