Fara í efni  

Fréttir

Jólakveðja og opnunartímar um hátíðirnar

Jólakveðja og opnunartímar um hátíðirnar

Starfsfólk Byggðastofnunar óskar viðskiptavinum sínum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Lesa meira
NORA styrkir tólf verkefni

NORA styrkir tólf verkefni

Á vetrarfundi Norræna Atlantssamstarfsins, NORA, sem haldinn var í Kaupmannahöfn þann 6. desember s.l. var ákveðið að veita styrki til tólf verkefna í seinni úthlutun ársins 2024. Íslendingar taka þátt í níu verkefnanna. Fimm af þeim tólf verkefnum sem hlutu styrk eru framhaldsverkefni. Heildarupphæð styrkjanna er 3,36 milljónir danskra króna sem jafngildir ríflega 68 milljónum íslenskra króna. Alls bárust 20 umsóknir að þessu sinni.
Lesa meira
Skjáskot úr mælaborði

Tekjur á hvern íbúa mismunandi eftir svæðum

Árið 2023 voru heildartekjur á hvern íbúa um 11 milljónir króna í Vestmannaeyjum en undir 6 m.kr. í Húnavatnssýslum, Borgarfirði & Dölum og Suðurnesjabæ & Vogum. Talsverður munur var einnig milli hæstu og lægstu upphæðar atvinnutekna á hvern íbúa en þær voru um 6 milljónir í Fjarðabyggð, Garðabæ og á Seltjarnarnesi en um 4 m.kr. í Húnavantssýslum, Borgarfirði & Dölum og Rangárvallasýslu. Þetta má m.a. sjá í mælaborði Byggðastofnunar og lesa um í skýrslu sem birt er í dag um tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2023.
Lesa meira
Styrkir til meistaranema

Styrkir til meistaranema

Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum þann 12. desember síðastliðinn að styrkja fjóra meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðamála. Auglýsing um styrkina var birt 21. ágúst og rann umsóknarfrestur út 1. nóvember. Verkefnin sem sótt er um styrk til skulu hafa skírskotun til markmiða eða aðgerða byggðaáætlunar. Alls bárust þrettán umsóknir. Heildarupphæð styrkjanna er 1,4 milljónir króna. Hver styrkur er að upphæð 350.000 kr. Styrkirnir eru fjármagnaðir af byggðaáætlun.
Lesa meira
Úr þjónustukortinu

Húsnæði fyrir óstaðbundin störf - staðsetningar

Nú hafa verið teknar saman upplýsingar um mögulegt húsnæði fyrir óstaðbundin störf og þær staðsetningar birtar í þjónustukorti Byggðastofnunar. Upplýsingum var safnað saman með aðstoð landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Lesa meira
Þórður Freyr Sigurðsson

Frá gestum til íbúa: Áhrif ferðaþjónustu á íslensk sveitarfélög

Þórður Freyr Sigurðsson lauk nýverið meistaranámi í sjálfbærri byggðaþróun (e. Sustainable Rural Development) frá University of Highlands and Islands. Lokaverkefni hans „Frá gestum til íbúa: Áhrif ferðaþjónustu á íslensk sveitarfélög“ (e. From visitors to residents: The effects of tourism on Icelandic municipalities) var eitt af fjórum verkefnum meistaranema sem fékk styrk úr Byggðarannsóknasjóði í desember 2022.
Lesa meira
Stuðningur við verslanir í dreifbýli

Stuðningur við verslanir í dreifbýli

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Að þessu sinni var úthlutað sautján milljónum kr. til verslana í dreifbýli fyrir árið 2025.
Lesa meira
Frá heimsókninni

Heimsókn í Dalabyggð

Í gær heimsóttu Arnar Már forstjóri, Hrund forstöðumaður fyrirtækjasviðs og Pétur sérfræðingur á fyrirtækjasviði fulltrúa sveitarfélagsins Dalabyggð í Búðardal. Þar var einkar vel tekið á móti þeim og ýmis mál rædd, m.a. óstaðbundin störf, póstþjónusta, vöntun á heilbrigðisstarfsfólki og kennurum, verkefnið Brothættar byggðir og uppbygging í atvinnulífinu á svæðinu svo eitthvað sé nefnt.
Lesa meira
Flutningur ríkisstarfa í landsbyggðirnar

Flutningur ríkisstarfa í landsbyggðirnar

Í gær undirrituðu Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar og Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar samning um styrk vegna óstaðbundinna starfa. Annars vegar var um ræða samning vegna óstaðbundins starfs á vegum Útlendingastofnunar sem staðsett verður í húsnæði Sýslumannsembættisins á Húsavík og hins vegar starfs sömu stofnunar sem staðsett verður í vinnustaðaklasanum Útibúinu á Hvammstanga.
Lesa meira
Snjöll aðlögun í byggðaþróun – fulltrúar Brothættra byggða á ráðstefnu í Svíþjóð

Snjöll aðlögun í byggðaþróun – fulltrúar Brothættra byggða á ráðstefnu í Svíþjóð

Í vikunni sem leið tóku tveir starfsmenn Byggðastofnunar ásamt fulltrúum frá Austurbrú og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) þátt í vinnustofu á vegum Nordregio um snjalla aðlögun í byggðaþróun. Nordregio er norræn rannsóknarstofnun sem sérhæfir sig í skipulags- og byggðamálum.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389